fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
EyjanFastir pennar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Úlfur, úlfur – hótanir kalla á viðbrögð

Eyjan
Fimmtudaginn 7. maí 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum. Það er meiri háttar mál að lenda upp á kant við þá.“

Þetta er tilvitnun í Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra. Ummælin féllu í viðtali í apríl 2021 um fyrstu reynslu hans í þessu ábyrgðarmikla embætti. Í dæmaskyni tilgreindi hann stórt sjávarútvegsfyrirtæki.

Svo sterk skoðun á því hverjir stjórna Íslandi að miklu leyti, og það úr húsi Seðlabankans, sætti eðlilega nokkrum tíðindum fyrir fimm árum.

Í beinu framhaldi var þáverandi formaður bankaráðs Seðlabankans, Gylfi Magnússon prófessor, kallaður í Kastljós. Þar sagði hann: „Þetta er raunverulegt vandamál.“ Í viðtali í Kjarnanum sagði hann síðan: „Ekki er annað hægt en að líta til útgerðarinnar og baráttunnar um auðlindagjaldið í þessum efnum.“

Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar spurði Katrínu Jakobsdóttur þáverandi forsætisráðherra hvort hún væri sammála seðlabankastjóra var svarið að hann hefði mátt skýra ummælin betur svo skilja mætti við hvað væri átt! 

Hótanir í fyrra og aftur núna

Ýmsir talsmenn fyrirtækja í sjávarútvegi hafa upp á síðkastið látið í veðri vaka að þeir muni segja upp öllu starfsfólki og selja veiðiréttinn til útlendinga verði af Evrópusambandsaðild.

Boðskapurinn er einfaldur: Við ætlum að græða á þessu og leggja sjávarplássin í auðn hætti ríkisstjórnin ekki við að leyfa þjóðinni að ákveða um framhald aðildarviðræðna. Við eigum þetta. Við megum þetta. Skýrari getur hótunin ekki verið.

Fyrir ári hótuðu þeir sömu að segja upp starfsfólki og loka vinnslustöðvum ef ríkisstjórnin hætti ekki við áform um lítils háttar hækkun á gjaldi fyrir ótímabundinn einkarétt til að hagnýta fiskveiðiauðlindina.

Hótanir ýttu þjóðarsátt út af borðinu

Árið 2000 var gerð sátt á milli stjórnmálaflokka og hagsmunasamtaka í sjávarútvegi um að setja ákvæði í stjórnarskrá um þjóðareign auðlindarinnar og tímabundinn nýtingarrétt. Sú sátt gufaði síðan upp án rökstuðnings.

Í kosningunum 2017 og 2021 hétu sex flokkar með um það bil tvo þriðju hluta kjósenda á bak við sig að gera þessa gömlu sátt loks að veruleika. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu Viðreisnar varð engu um þokað.

Ástæðan: Skýr skilaboð um að á þetta yrði litið sem árás á sjávarútveginn með alvarlegum afleiðingum fyrir sjávarplássin. Það dugði að einn flokkur í ríkisstjórn hlýddi kallinu. Meira þurfti ekki til að ýta þjóðarsátt út af borðinu.

Óttast að þjóðareignin verði stjórnarskrárbundin

Áhyggjur seðlabankastjóra og formanns bankaráðs Seðlabankans frá 2021 komu ósjálfrátt upp í hugann þegar talsmenn sjávarútvegsfyrirtækjanna fóru á dögunum enn og aftur að kalla úlfur, úlfur. Nú vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Að þessu sinni er hótunin þó broslegri en fyrr. Einfaldlega vegna þess að utanríkisráðherra sagði strax í byrjun að hún myndi ekki skrifa undir samning nema yfirráð Íslands yfir auðlindinni yrðu tryggð. Að auki liggur fyrir að þjóðin fær að segja álit sitt á ný þegar hugsanleg samningsniðurstaða liggur fyrir.

Þar af leiðir að ekkert bendir til þess að hluthafarnir geti gert hótunina að veruleika.

Líklegt er því að hótunin nú sé í reynd vegna ótta um allt annað. Það er ótti um að samfara stjórnarskrárbreytingu vegna aðildar verði þjóðarsáttin um sameign þjóðarinnar og tímabundinn veiðirétt á endanum bundin í stjórnarskrá.

Verðmætustu eigninni fórnað fyrir sérhagsmuni

Sá ótti er raunverulegur vegna þess að núverandi ríkisstjórn sýndi í verki í fyrra að hún tekur almannahagsmuni fram fyrir sérhagsmuni í þessum átökum.

Samtök atvinnulífsins hafa kúvent afstöðu sinni til þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er vísbending um að sérhagsmunaöfl hafi náð sterkari tökum innan samtakanna en áður var. Og hótanirnar eru líka vísbending um að þau kunni að fara í sams konar áróðursherferð gegn því að þjóðin fái að ráða þessari vegferð eins og þau ráku gegn ríkisstjórninni í fyrra í samspili með stjórnarandstöðunni.

Ekki er unnt að ganga út frá því sem vísu að slík herferð endi jafn snautlega nú og þá.

Í tengslum við umræðu um að Samtök atvinnulífsins hefðu kúvent afstöðu sinni án rökstuðnings og mats á nýjum aðstæðum sagði Margrét Kristmannsdóttir fyrrum varaformaður samtakanna:

„Í stuttu máli virðist atvinnupólitík hafa vikið fyrir flokkspólitík, sem rýrir trúverðugleika þessara samtaka – þeirra verðmætustu eign!“

Möguleg viðbrögð við endurteknum hótunum

Þótt borðleggjandi sé að hvorki núverandi ríkisstjórn né þjóðin myndu samþykkja aðildarsamning, sem gerði hluthöfum sjávarútvegsfyrirtækjanna kleift að selja veiðirétt þjóðarinnar úr landi, er rík ástæða fyrir atvinnuvegaráðherra og forsætisráðherra að íhuga varnaraðgerðir gegn þessum síendurteknu hótunum.

  • Þannig ætti tafarlaust að setja lög sem takmarka eignarhald á útgerðum, með aflaheimildir þjóðarinnar, við þá sem hafa að minnsta kosti í fimm ár samfellt haft lögheimili á Íslandi.
  • Einnig væri rétt að ríkisstjórnin gæfi út yfirlýsingu um að hún muni við lok kjörtímabilsins leggja til stjórnarskrárbreytingu, sem tæki af skarið um þjóðareign á fiskveiðiauðlindinni.

Aðvörunarorð seðlabankastjóra fyrir fimm árum snerust í raun og veru um lýðræðið. Einmitt þess vegna er mikilvægt að ríkisstjórnin loki ekki augunum þegar hagsmunaöflin hafa enn á ný í hótunum við lýðræðislega kjörin stjórnvöld, sjávarbyggðirnar og launafólkið sem vinnur í sjávarútveginum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum

Sigmundur Ernir skrifar: Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Skrýtnar áherslur
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Þýskan er lykilatriði

Björn Jón skrifar: Þýskan er lykilatriði
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
05.04.2026

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt