fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki

Eyjan
Laugardaginn 9. maí 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestum er að verða ljóst að aðild að Evrópusambandinu, ef viðunandi samningar nást, getur lagt grundvöll að varanlegri endurreisn Íslands, m.a. í peningamálum og varðandi orðspor og umsvif íslendinga á alþjóðavettvangi. Þessi vegferð mun væntanlega hefjast fyrir alvöru á vormánuðum, ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins kemst að jákvæðri niðurstöðu um aðildarviðræður. Ef það verður ekki sé ég a.m.k. fyrir mér grýttari og lengri leið upp úr þeirri holu sem Ísland er komið í.“

Þessi orð birtust í grein á visir.is á gamlársdag 2008. Höfundurinn er þáverandi forstjóri 365 miðla, Ari Edwald. Ari er í dag oddviti Miðflokksins í Reykjavík, en Miðflokkurinn er sem kunnugt er hatrammur á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Svo hatrammur raunar að hann vill ekki einu sinni leyfa íslenskum kjósendum að taka ákvörðun um það hvort hefja eigi aðildarviðræður við sambandið á nýjan leik.

Orðið á götunni er að slík kúvending í jafn stóru máli lýsi ekki beinlínis mikilli stefnufestu oddvitans. Einhverjir myndu kjósa að nota orðið veifiskati, eða jafnvel vindhani, yfir menn, sem haga seglum eftir vindi og er slétt sama hvert för er heitið, láta það ráðast af vindáttinni hverju sinni.

Raunar er Ari ekki eini Miðflokksmaðurinn sem vent hefur kvæði sínu í kross í Evrópu málum. Meiri þungavigtarmenn en oddvitinn í Reykjavík hafa gert það. Sjálfur formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem nú hatast við ESB líkt og Drakúla dagsljósið, talaði á allt annan veg fyrir nokkrum árum. Þá var hann raunar formaður annars flokks.

Sama má segja um núverandi og fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins. Guðrún Hafsteinsdóttir var eitt sinn formaður Samtaka iðnaðarins og lýsti þá þeirri bjargföstu skoðun sinni að ljúka ætti aðildarviðræðum og bera samning svo undir þjóðina. Svo fór hún í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sóttist eftir formennsku. Þá kaus hún að láta af sannfæringu sinni, enda aðrir vindar sem þar blési. Evrópusinni hefði ekki átt möguileika á frama innan þess flokks.

Orðið á götunni er að það hafi verið vandræðalega augljóst hvernig Bjarni Benediktsson, sem var Evrópusinni og fór ekkert leynt með það, snerist í hálfhring og fór að bölsótast út í ESB þegar hann áttaði sig á því að öðruvísi gæti hann ekki orðið formaður flokksins.

Orðið á götunni er að lítilsigldur sé sá stjórnmálamaður sem lætur vindátt hverju sinni ráða för. Gagnslaust og jafnvel stórhættulegt sé að lúta forystu slíkra. Þeir sem einatt reyna að svala eigin stundarhagsmunum hafa enga sýn heldur hugsa bara um sig og þá sem þeir telja að geti reynst þeim vel í það og það skiptið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis

Ísfélagið vigtar aflann hjá fyrirtæki í eigu forstjórans eftir afturköllun leyfis
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hræðslan við 29. ágúst
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórður Snær segir Morgunblaðið, SFS og „hlaðvarpstrúða“ stunda gaslýsingar

Þórður Snær segir Morgunblaðið, SFS og „hlaðvarpstrúða“ stunda gaslýsingar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Góðvinir og listin að vera ósammála sjálfum sér

Svarthöfði skrifar: Góðvinir og listin að vera ósammála sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina

Ísfélagið missir vigtunarleyfi í hálft ár – Fiskistofa telur að átt hafi verið við vigtina
Eyjan
Fyrir 1 viku

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður

Albert Jónsson: Ísland eina ríkið til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður – aldrei gerst áður