fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Björg Magnúsdóttir: Skuldum börnunum að halda áfram með Samgöngusáttmálann

Eyjan
Mánudaginn 11. maí 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við verðum að taka okkur á varðandi umhirðu borgarinnar, fara meira inn í hverfin og byggja þau upp. Við verðum að taka peningana út úr kerfunum og setja þá inn í hverfin. Gera Reykjavík að þjónustuborg en ekki eftirlitsborg. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 5
play-sharp-fill

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 5

Nú held ég að, ja, ég ætlaði nú að segja að fáir deili um það en það er nú vissulega deilt um það eins og annað. Mér finnst Reykjavík, þegar ég tala um Reykjavík, það er nú að horfa á miðbæinn, svona borgina, ekki úthverfin, mér finnst hún hafa tekið stórstígum framförum á undanförnum árum og þetta er miklu fallegri og skemmtilegri borg. En það er eins og þú bendir á, svo kemurðu út fyrir þetta svæði og þá kemurðu að þessum brotnu gangstéttum og mygluðu skólabyggingum og svona. Það verður að vera eitthvað jafnvægi þarna á hlutunum.

„Já og ég get alveg tekið undir með því, við sjáum hérna bara svona líflegri borg, miklu fleiri veitingastaði, meira valfrelsi í samgöngum og alls konar. Þetta er miklu líflegri borg heldur en kannski fyrir 30 árum. En mér finnst samt, eitt langar mig að segja um miðbæinn, ég held að við ættum að bara hreinsa betur og taka oftar til. Mér finnst bara mjög margir sem ég hef talað við sem eru í miðbænum, það eru bara fullar ruslatunnur og svona illa hirt. Ég held að við gætum alveg gert betur þar.“

Þetta er dálítið rétt hjá þér. Ég tek undir þetta. Ég var í Stokkhólmi um daginn. Ég hef oft áður komið til Stokkhólms en aldrei sem túristi og ég verð að segja að ég dáist að mörgu þar. Almenningssamgöngurnar eru frábærar. En það er hreint. Hérna, götur eru ekki þrifnar. Ekki í nándar nærri miklum mæli. Ég er alveg sannfærður um að þessi svifmengun sem verður til þess að fólk er varað við að fara út úr húsi, þetta er ekki bara út af því að einhverjir bílar keyra á nöglum, þetta er út af því að göturnar eru ekki sópaðar og hreinsaðar með vatni.

„Ég held að við mættum gera betur þarna og þetta er líka eitthvað svona sálrænt þegar það er bara fallegt í kringum þig og þá ertu kannski bara stoltur af umhverfi þínu, ferð jafnvel betur með og svona. En ef allt er draslaralegt og það er hvort eð er komið drasl út um allt, æ, þá kannski hendirðu bara líka drasli á gólfið eða eitthvað svona. Þannig að ég held að við mættum alveg gera gangskör í þessu. Það hefur auðvitað líka, þessar raddir heyrast alveg að úthverfin séu gleymdari. Ég var nú á íbúafundi í Breiðholti um daginn og þar einmitt var verið að tala um þetta, innviðaskuldin þar er gríðarleg, í bara íþróttamannvirkjum og þessu „basic“ dóti sem við erum að tala um, gangstéttarhellur og annað og bara grænu svæðin og rólurnar og hvar á að vera næs að setjast niður og eiga einhvern tíma með fjölskyldunni og svona. Þannig að ég held að við þurfum einmitt að fara dálítið inn í hverfin og bústa þau.“

Núna eru bara nokkrir dagar til kosninga.

„Já, það eru tíu dagar.“

Tíu dagar núna þegar við sitjum hér. Og Viðreisn, nú vitum við ekkert hvað kemur upp úr kössunum en við erum að sjá ákveðið trend í skoðanakönnunum. Eru einhverjir flokkar sem Viðreisn vill vinna með, eru einhverjir flokkar sem að Viðreisn vill ekki vinna með?

„Já, þetta er alveg snúið, þetta er alveg rétt sem þú segir. Ef við plaserum Viðreisn þarna einhvers staðar á miðjuna og horfum til vinstri einhvern veginn yfir margfaldan meirihluta sem við höfum verið mjög gagnrýnin á þá stefnu og þá mynd sem blasir við í Reykjavík núna og það er undir stjórn Samfylkingarinnar. Það er algjörlega óumflúið. Ég var að segja hérna áðan að ég fer í pólitík út af mygluðum leikskóla og mér finnst bara rosalega sorglegt hvernig komið er fyrir skólamálum í borginni. Reykjavík á að vera leiðandi í skólamálum. Við höfum gjörsamlega misst þá forystu. Kennarar hafa snúið baki við borginni og farnir eitthvert annað og það er bara mygluð hús og mannekla og vesen út um alla borg. Þannig að þetta er svolítið það sem blasir við vinstra megin. Hægra megin sjáum við fólk sem vill rífa samgöngusáttmálann upp með rótum og jafnvel flokka sem tala á móti hinsegin samfélaginu í Reykjavík sem er nú bara eitur í okkar beinum. Þannig að þetta eru ekki augljósir valkostir. Ég vona nú að það verði fleiri leiðir til að telja upp í tólf og jafnvel hærra heldur en annaðhvort hingað eða hingað.

Við auðvitað bíðum eftir niðurstöðu kjósenda og nú er það svona keppikefli okkar sem erum í þessum framboðum núna að bara kynna okkar stefnu fyrir kjósendum og hvað við stöndum fyrir og ég og við í Viðreisn vonumst auðvitað til þess að það verði bara öflug frjálslynd miðja sem ætlar að taka til en ætlar líka að halda áfram með stór verkefni inn í framtíðina eins og samgöngusáttmálann. Mér finnst samgöngusáttmálinn vera svolítið það sem við skuldum börnunum okkar að halda áfram með. Af því að niðurrifspólitík og að ætla að brjóta allt og bramla og fara einhvern veginn aftur til fortíðar, það er engin framtíðarsýn, það er fortíðarþrá, fortíðin er búin. Nú þurfum við að halda áfram. Þannig að ég er að vonast til að fara nú aðeins upp í skoðanakönnunum og fá jafnvel inn, eins og við vorum að tala um áðan, hann Þorvald Davíð. Hann er í baráttusætinu hjá okkur og vonandi er hún Margrét Rósa bara í baráttusætinu hjá okkur. Hún er í fjórða sæti. Þetta er algjört úrvalsfólk og eins og ég segi, þetta er fólk og við erum búin að tala um það mjög mikið okkar á milli. Við förum inn með það í huga, við erum að fara að vinna fyrir borgarbúa. Við ætlum að gera Reykjavík að þjónustuborg en ekki eftirlitsborg. Við ætlum að einfalda ferlana, gera hér lífið skemmtilegra og setja peninginn, taka peninginn úr kerfunum og setja hann út í hverfin. Það er það sem við viljum gera.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Vilhelm Jónsson skrifar: Sjálfskapavíti borgaryfirvalda – hvenær er komið nóg?

Vilhelm Jónsson skrifar: Sjálfskapavíti borgaryfirvalda – hvenær er komið nóg?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum

Ragnar Þór Ingólfsson: Framganga stjórnarandstöðunnar með hreinum ólíkindum
Hide picture