fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Eyjan

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri

Eyjan
Fimmtudaginn 7. maí 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason fyrrum ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins fullyrðir í sínum daglega pistli á heimasíðu sinni að eftir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík muni Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri leiða vinstri arm Samfylkingarinnar inn í meirihlutasamstarf við Viðreisn, Vinstrið, Sósíalistaflokkinn og Flokk fólksins. Segir Björn að með þessu ætli Heiða að hefna sín á Pétri Marteinssyni fyrir að ná að af henni oddvitasætinu í prófkjöri flokksins.

Leggur Björn út af grein Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem hvatti í grein í Morgunblaðinu kjósendur til að kjósa flokkinn til að tryggja að Samfylkingunni yrði ekki hleypt inn í meirihlutasamstarf. Reynsla síðustu kjörtímabila hafi sýnt að þetta sé raunin og Björn tekur undir það.

Rangnefnir Björn raunar framboð Vinstrisins en hann kallar það Vor til vinstri. Vinstrið er hins vegar sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri, sem er flokkur undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur. Hvort Björn sé vísvitandi að rangnefna framboðið til að gera lítið úr því eða hafi einfaldlega skjátlast er ekki fyllilega ljóst. Það er hins vegar ekki óþekkt taktík í opinberri umræðu að rangnefna flokka, samtök og fólk viljandi til að gera lítið úr því.

Björn rifjar upp prófkjör í Samfylkingunni fyrr á þessu ári þar sem Heiða Björg laut í lægra haldi fyrir Pétri sem nú er borgarstjóraefni flokksins en ekki hún. Baráttan hafi verið hörð og persónuleg. Stuðningsmenn Heiðu Bjargar hafi sótt að Pétri með ásökunum um fasteignabrask. Þá grói seint um heilt og Heiða Björg ákveðið að taka 2. sætið á lista Samfylkingarinnar til að ná sér niðri á Pétri.

Hefnd eða ekki

Meta verður orð Björns út frá því að hann er að leggja sig fram við að vinna fylgi til handa Sjálfstæðisflokknum. Taka verður þó undir með honum að baráttan milli Heiðu Bjargar og Péturs var á köflum persónuleg og sú fyrrnefnda fór ekki í grafgötur með að í ljósi reynslu sinnar væri hún mun hæfari til að vera oddviti en Pétur sem er nýgræðingur í stjórnmálum. Kallaði hún Pétur meðal annars frægan karl með enga reynslu í skilaboðum til aðila sem hún reyndi að fá til að kjósa hana í fyrsta sæti í prófkjörinu.

Heiða gengst við að hafa sent skilaboðin og biður Pétur afsökunar – „Hef einsett mér að gera betur“

Á meðan prófskjörbaráttunni stóð spurðist Heiða Björg fyrir hjá umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar um framsal lóðaréttinda en það gerði hún eftir að fréttir birtust í fjölmiðlum um viðskipti Péturs við borgina með lóðir í Skerjafirði. Pétur mun hafa hins vegar sagt sig frá þeim viðskiptum áður en hann bauð sig fram.

Þurfti að fara í hart til að fá afhent gögn um viðskipti Péturs Marteinssonar

Hvað Björn Bjarnason hefur fyrir sér í því að Heiða Björg hafi samþykkt að taka 2. sæti á lista Samfylkingarinnar til að hefna sín á Pétri nefnir hann ekki. Heiða Björg tók sér nokkurn umhugsunarfrest áður en hún samþykkti það og erfitt er að sjá hvernig hún ætti að geta nýtt 2. sætið til að klekkja á oddvitanum. Hún er þó mun reyndari í stjórnmálum en Pétur og hefur starfað mun lengur í Samfylkingunni og ætti því að geta verið í aðstöðu til að gera honum erfiðara fyrir en hvort hún tilbúin til að setja eigin hefndarþorsta, sé hann yfirhöfuð til staðar, ofar hagsmunum flokksins er stór spurning og það liggur varla í augum uppi að svarið við henni ætti að vera augljóslega já.

Björn gæti líka vel verið að setja þessa fullyrðingu fram, án mikillar innistæðu fyrir henni, til að ýta undir óeiningu innan Samfylkingarinnar og hvetja kjósendur í Reykjavík til að velja Sjálfstæðisflokkinn.

Meirihluti

Björn segir að fái þessir flokkar nægan fjölda borgarfulltrúa muni Heiða Björg og vinstri armur Samfylkingarinnar, undir hennar forystu, stefna á myndun meirihluta með Vinstrinu, Viðreisn, Flokki fólksins og Sósíalistaflokknum. Hvernig Heiða Björg á hins vegar að fara að því verandi í 2. sæti á listanum að hafa forystu um meirihlutasamstarf án mikils tillits til þess hvað oddvitinn Pétur hafi um það að segja rökstyður Björn ekki.

Björn segir um Flokk fólksins:

„Auglýsingar frá Flokki fólksins fyrir kosningarnar núna eru allar í vinstri anda og koma greinilega úr smiðju gamla samfylkingarmannsins Heimis Más Péturssonar sem hefur öll kynningar- og kosningamál flokksins á hendi sér. Nái flokkurinn að krækja sér í borgarfulltrúa verður hann sjálfkrafa innvígður í vinstri hópinn í borgarstjórninni.“

Björn lætur þess hins vegar ekki getið að köldu hefur andað milli Samfylkingarinnar og Guðmundar Inga Þóroddssonar oddvita Flokks fólksins síðan að honum var synjað um sæti á lista fyrrnefnda flokksins. Voru deilur Guðmundar Inga og Samfylkingarinnar vegna þessa háðar að miklu leyti fyrir opnum tjöldum. Guðmundur Ingi lét einnig þau orð falla í nýlegu hlaðvarpsviðtali að Samfylkingin væri elítuflokkur sem hefði ekki raunverulegan áhuga á þeim sem minnst mega sín í þjóðfélaginu þrátt fyrir fögur orð um annað.

Ræður Björg?

Björn getur þess ekki heldur að í gær lýsti Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar því yfir að hún hefði takmarkaðan áhuga á meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna í ljósi þess hversu illa sá flokkur hafi haldið á leikskólamálum í Reykjavík.

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björn telur hins vegar að á endanum muni Björg engu ráða um það með hverjum Viðreisn myndi meirihluta eftir kosningarnar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður flokksins muni geri oddvitanum það ljóst að hinir ríkisstjórnarflokkarnir; Samfylkingin og Flokkur fólksins skuli vera fyrsti valkostur í meirihluta í borgarstjórn. Þetta sé til að tryggja það Íslandi verði komið í Evrópusambandið.

Ljóst er þó að borgarstjórn Reykjavíkur stýrir ekki utanríkismálum Íslands. Minnast ber þess einnig í þessu samhengi að söguleg fordæmi eru fyrir því að flokkar hafi starfað saman í ríkisstjórn en verið andstæðingar í borgarstjórn Reykjavíkur. Til að mynda störfuðu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn saman í ríkisstjórn frá 1995-2007, og Björn var ráðherra nánast allan þennan tíma. Frá 1994-2006 var Framsóknarflokkurinn hins vegar hluti af Reykjavíkurlistanum sem var á þessum árum með meirihluta í borgarstjórn á meðan Sjálfstæðisflokkurinn var þar í minnihluta. Ekki virtist þetta hafa mikil áhrif á stjórnarsamstarf Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokkins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB