fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Eyjan
Föstudaginn 8. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavík gerir vel í því að bjóða hæsta frístundastyrkinn, 70 þúsund krónur á barn. Mikill og vaxandi kostnaður við íþróttir veldur stéttaskiptingu þar sem börn efnaminni foreldra sitja á hakanum. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 2
play-sharp-fill

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 2

Eitt sem margir hafa áhyggjur af og ekki að ástæðulausu í sambandi við íþróttirnar, það er kostnaðurinn. Það náttúrlega eru áratugir síðan það var tekinn upp þessi frístundastyrkur eða tómstundastyrkur. Ég man nú eftir því. Ég átti börn sem voru í íþróttum þegar þetta kom á í Garðabæ og það sem ég tók eftir var að ég held að það hafi verið 25.000 krónur og það næsta sem gerðist er að æfingagjöld hjá Stjörnunni hækkuðu um 25.000 krónur. Þannig að þetta rann allt beint til íþróttafélagsins. Ég hef stundum verið að hugsa, er þetta ekki fullkomlega vitlaus nálgun, þetta er eins og bara húsaleigubætur til leigjenda sem eiga til að fara bara í hækkun á leigu. Er ekki miklu sniðugra að sveitarfélögin semji við íþróttafélögin um, ókei, þetta er sá kostnaður sem þið fáið per barn og velti síðan bara tilteknum hluta af því yfir á fjölskyldurnar?

„Já, það má örugglega skoða það. En mér heyrist nú hafa verið ágætisánægja með þennan frístundastyrk og við sjáum það að þarna er Reykjavíkurborg að gera vel. Reykjavíkurborg býður hæsta frístundastyrkinn á landinu, það er 70.000 krónur. En ég meina, ég er sjálf að borga æfingagjöld, þetta er miklu meira. Það er það sem er svo sorglegt ef maður er að horfa á þessar tölur og ef það eru krakkar sem komast ekki í íþróttirnar og hvað þá tónlistarnám og annað af því þetta er bara orðinn einhver munaður. Þetta er orðin stéttaskipting í því hvað barn getur æft margar íþróttir, hvort að barn getur farið að æfa fimleika. Mér skilst að það sé svona eitt dýrasta sportið, það eru dýrir æfingagallar og alls konar. Þetta er líka eitthvað svona samfélagslegt mál. Af því svo líka, íþróttafélögin auðvitað eru alltaf að reyna að hafa sín fjármál í lagi og svona, þá eru þau að selja nýjar treyjur með einhverjum nýjum auglýsendum fyrir næsta ár og allt þetta. En við vitum það öll að þessi kostnaður hefur farið mjög vaxandi og er mjög hár. Og þetta má ekki vera þannig eins og ég segi að þetta sé stéttaskipting þegar kemur að þessu. Mér finnst það alveg glatað.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir
Hide picture