fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Eyjan

Björg Magnúsdóttir: Ég vil borg sem börnin mín vilja búa í

Eyjan
Þriðjudaginn 12. maí 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðreisn er akkerið á miðjunni sem kemur í veg fyrir öfgar. Það þarf að passa sig á að byggja ekki upp mikið bákn sem sogar til sín peninga vegna þess að það þarf að passa vel upp á peninginn til að hann geti farið í að passa upp á fólkið. Svo þarf skýra framtíðarsýn um skemmtilega borg sem börnin okkar vilja búa í. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Viðreisn er náttúrulega á miðjunni, frjálslyndur flokkur á miðjunni. Það skiptir máli, maður tekur eftir því að við vitum hvað hefur verið við stjórn og hverjar áherslur eru þar og það er sumt gott en margt síðra. Hægra megin, þar vilja menn bara taka allt og og brjóta og bramla og byrja að föndra upp á nýtt. Eins og þú segir, þið eruð þarna á milli.

„Eina vitið er bara að styrkja Viðreisn. Ég ætla bara að fá að segja það.“

Og það skiptir máli nefnilega að það sé svona akkeri á miðjunni sem getur komið svona smá skikki á hlutina. Sem að getur haft vit fyrir jöðrunum?

„Já, nákvæmlega. Af því að ég held nú að við Íslendingar séum upp til hópa svona einhvers staðar þarna á miðjunni. Þannig að við erum bara að tala fyrir þessum skynsemisskyldum. Við segjum stundum hægri hagstjórn, vinstri velferð. Þetta felur auðvitað bara það í sér að passa vel upp á peninginn til að hann geti farið í það að passa vel upp á fólkið. En ef þú ert búinn að byggja það stórt bákn og það stórt kerfi að allur peningurinn er að fara í einhverja fundi og skipurit, einhverjar svona brjálaðar flækjur, þá nær peningurinn ekki að gera það sem hann á að gera sem er að vinna fyrir fólkið þarna úti. Þannig að við viljum fara inn með þessi gleraugu og þessi praktísku gleraugu sem ég var að tala um.

En líka þetta með framtíðarsýnina. Það skiptir máli að það sé einhver skýr framtíðarsýn fyrir Reykjavík. Og mér finnst, og veistu, það er alveg pínu fyndið að hugsa til þess, ætli bílastæði hafi ekki verið það mál sem mest er talað um fyrir þessar kosningar. En ef þú hugsar það aðeins í stóra samhenginu, hversu gott höfum við það ef bílastæði og fjöldi bílastæða er það sem er heitast í umræðunni? Mér finnst það nú svona í samhengi hlutanna þá má alveg taka það til. Mig langar að börnin mín vilji vera hérna og geti verið hérna og það sé hús eða íbúð á viðráðanlegu verði, það sé hægt að komast á milli staða, við séum dálítið frjálslynd og framsækin og gaman að stofna fyrirtæki og þetta sé svona. stemningsborg þar sem ferlar eru skýrir og einfaldir. Þetta er ekki staðan í dag þannig að þetta er okkar framtíðarsýn. Við viljum fara þangað.“

Ég sé það að ég sá sjónvarpsauglýsingu fannst mér í gær, já, þar sem þú varst að tala við kjósendur. Viðreisn hefur ekkert verið rosalega áberandi í fjölmiðlum fram til þessa.

„Nei, við fórum seint af stað. Og það var líka með ráðum gert. Vegna þess að það er gott að eiga inni góðan endasprett. Og það er nú líka, ég heyri það, ég er bara búin að vera að liggja í símanum núna síðustu daga að tala við fólk út um alla borg og hringja í kjósendur og við erum að gera það núna. Það eru rosalega margir sem eru ekkert byrjaðir að pæla í kosningunum og ég er alveg bara, vitið þið ekki hvað er stutt í kosningar? Og það er einhvern veginn svona. Kannski af því það er, þú veist, það er náttúrulega verið að kjósa í rúmlega sextíu sveitarfélögum. Það er rosalega mikið áreiti og margir frambjóðendur eru að reyna að koma sér á framfæri. Ég held að kannski almenningur sé minna spenntur fyrir þessu heldur en við frambjóðendur. En ég held nú að á þessum lokadögum hljóti þetta aðeins að fara í gang.“

Já, ég tek undir þetta. Maður hefur orðið var við þetta. Já, það er tiltölulega lítill áhugi meðal kjósenda. Það ætti nú að vera gott merki af því þegar fólk hefur ekki áhuga á pólitík, er þá ekki allt í lagi?

„Það er kannski einn mælikvarði.“

En samt eru þessi stóru mál, þú hefur verið að koma inn á þau hérna, sem brenna á fólki. Og það er mikilvægt. Og ég held nefnilega að stór hluti kjósenda sé óákveðinn í dag, mjög stór hluti. Þetta fólk ákveður sig á síðustu vikunni, margir ákveða sig ekki fyrr en þeir eru komnir inn í kjörklefann.

„Einmitt.“

Þannig að skilaboðin og hvernig þau eru fram sett á endasprettinum skipta máli.

„Algjörlega, ég get tekið undir það.“

Þannig að það verður lítið um svefn?

„Það verður lítið um svefn og það hefur verið lítið um svefn en það er allt í lagi. Þetta er bara tímabundið áhlaup og svo vonumst við auðvitað til að vera komin í meirihlutaviðræður og hafa hér góð áhrif á Reykjavík bara næstu fjögur árin, það er okkar draumur.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri