fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin

Svarthöfði
Föstudaginn 8. maí 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhver magnaðasta afhjúpun síðari tíma á sér stað á forsíðum Morgunblaðsins þessa dagana. Svarthöfði minnist þess ekki að jafnrækilega hafi verið leyst niður um ráðherra í ríkisstjórninni og gert er í þessum fréttaflokki blaðsins, sem svo er bergmálað í leiðara blaðsins í dag.

Nú er ekki víst að margir hafi lesið þessi ósköp þar sem blaðið fer ekki víða og þykir Svarthöfða þá rétt að gera örstutta grein fyrir hvað er verið að afhjúpa. Það er nefnilega samsæri gegn landsmönnum í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er í ágúst að áliðnum slætti.

Samsærið fólst í því að ráðherrar í ríkisstjórninni væru að tala við alls konar dyraverði í Evrópusambandinu um mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna. Og nefndir hafa verið ýmsir dyraverðir eins og Maros Sefcovic utanríkisviðskiptastjóra ESB, Kaju Kallas utanríkismálastjóra og Mörtu Kos stækkunarstjóra ESB, að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnarinnar ógleymdri.

Svarthöfða þykir sem höfuðið hafi verið bitið af skömminni þegar hann sér á forsíðu Morgunblaðsins í dag að meira að segja Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs og Donald Tusk forsætisráðherra Póllands tóku þátt í þessu svívirðilega háttarlagi.

Auðvitað nær ekki nokkurri átt ráðherrar í ríkisstjórn Íslands séu að ræða við forystumenn í selskap sem Evrópusambandið er. Svarthöfða finnst engu breyta þótt það standi í sáttmála sömu ríkisstjórnar að kanna skuli hug landsmanna til áframhaldandi viðræðna um aðild landsins.

Svarthöfða finnst það argasti dónaskapur að ekki skuli haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort ráðherrar í ríkisstjórninni eigi að tala við embættismenn ESB og jafnvel forsætisráðherra annarra ríkja, áður en þau samtöl fara fram.

Lágmark væri að biðjast leyfis hjá Morgunblaðinu áður en haldið er út í slík samskipti. Morgunblaðið veit enda miklu betur en þjóðin hvað henni er fyrir bestu.

Það flokkast með öðrum örfáum undrum veraldar að blaðið sé ekki lesið víðar en raun ber vitni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga