fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Þórður Snær varar kjósendur við: Þetta gerist strax ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í Reykjavík

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. maí 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það eina sem mun gerast strax, komist Sjálfstæðisflokkur til valda, er að samfélagslegum gæðum sem eru að virka fyrir okkur verður breytt í markaðsvöru til að þjóna hugmyndafræðilegum kreddum og sérhagsmunum á kostnað lífsgæða borgarbúa.“

Þetta segir Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í morgun.

Í grein sinni varar Þórður Snær borgarbúa við því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og stillir kosningunum upp sem baráttu á milli einkavæðingar og samfélagslegra gæða.

Þórður bendir á að hann hafi búið mestan part ævi sinnar í Reykjavík og séð borgina þróast úr því að vera eins konar sveit þar sem gæðum var skammtað og hagsmunir bíla voru settir ofar mannvænu samfélagi við skipulagsgerð yfir í að vera borg á heimsmælikvarða.

„Að selja eignirnar ykkar“

Hann segir að þótt miklum vexti fylgi vaxtarverkir og óhjákvæmilega séu einstaka mistök gerð sé Reykjavík dagsins í dag frábær borg sem hefur batnað stórkostlega á síðustu þremur áratugum. Þá hafi hún allar forsendur til að halda hratt áfram á þeirri vegferð. Það sé dapurlegt að ýmis framboð, sérstaklega á hægri vængnum, láti eins og höfuðborgin brenni og hér sé allt í kalda kolum. Segir Þórður að það sé lítið annað en afvegaleiðing.

„Slykja til að beina sjónum almennings frá þeirri kjarnastefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrst og síðast fyrir. Að selja eignirnar ykkar.“

Þórður Snær segir að efnahagsstefna Sjálfstæðisflokksins miði að aukinni einkavæðingu og sölu opinberra eigna til að fjármagna skattalækkanir og varar við því að flokkurinn vilji reka Reykjavík eins og fyrirtæki þar sem arðsemi ráði för, en ekki samfélagsleg ábyrgð og almannaþjónusta.

„Þótt það eigi og megi alltaf sýna skilvirkni, kostnaðareftirlit, árangursmælingar og betri stjórnun þá má aldrei reka sveitarfélag þannig að markmiðið sé að hámarka hagnað og skera til þess niður í þjónustu sem þykir óarðbær. Þetta skilur jafnaðarfólk vel, en hægriflokkar alls ekki,“ segir hann og tiltekur atriði í stefnuskrá flokksins.

Einkarekin gróðafyrirtæki

Þórður Snær segir Sjálfstæðisflokkinn stefna að aukinni einkavæðingu í orkugeiranum, meðal annars með sölu eigna úr samstæðu Orkuveita Reykjavíkur og ríkisfyrirtækjum á borð við Rarik, Landsnet og Landsvirkjun, og varar við því að slíkt muni færa yfirráð yfir mikilvægum innviðum frá almenningi til einkaaðila.

„Það er alveg skýrt að Sjálfstæðisflokkurinn hefur mestan áhuga á að breyta mikilvægustu innviðafyrirtækjum okkar í einkarekin gróðafyrirtæki,“ segir hann og bætir við að afleiðingarnar verði hærra verð og hagnaður fari til fárra einkaaðila.

Hann segir þetta ekki einskorðast við orkumál því Sjálfstæðisflokkurinn vilji koma stærri hluta heilbrigðisþjónustu, menntakerfis og samgöngukerfa í hendur hagnaðardrifinna einkaaðila og láta þá um að sinna þessari þjónustu að viðbættri arðsemiskröfu.

„Komist hann til valda í Reykjavík eftir komandi kosningar þá ætlar hann að leggja niður almenna íbúðarkerfið og selja mörg þúsund félagslegar íbúðir sem veita lágtekjufólki og viðkvæmum hópum þak yfir höfuðið, án þess að nokkuð komi í staðinn. Sjálfstæðisflokkurinn vill búa til markaðsvöru úr félagslegu öryggisneti,“ segir hann.

Þá gagnrýnir hann einnig það sem hann segir vera áform Sjálfstæðisflokksins um sölu bílastæðahúsa borgarinnar og Malbikunarstöðina Höfða.

Þetta muni gerast strax

„Það er ágætt að borgarbúar átti sig á þessu öllu saman áður en þeir ganga til kosninga á laugardag. Það eina sem mun gerast strax, komist Sjálfstæðisflokkur til valda, er að samfélagslegum gæðum sem eru að virka fyrir okkur verður breytt í markaðsvöru til að þjóna hugmyndafræðilegum kreddum og sérhagsmunum á kostnað lífsgæða borgarbúa. Þetta er pólitík hinna fáu á kostnað allra hinna, klædd í búning einhvers annars rétt á meðan atkvæðunum er smalað,“ segir Þórður Snær harðorður.

Í lok greinarinnar segir Þórður Snær að Reykjavík sé frábær borg sem geti áfram þróast til betri vegar.

„Þótt það sé alltaf eitthvað sem megi betur fara og að það megi alltaf takast á um hvernig forgangsraða eigi verkefnum þá eigum við hana saman og hún getur virkað fyrir okkur öll. Sá máttur hverfur ef hægrinu er hleypt óbeisluðu að valdinu til að selja öll helstu verðmætin okkar.“

Sjálfstæðisflokkurinn hefur hins vegar sagt að aukin aðkoma einkaaðila geti stuðlað að hagkvæmari rekstri og betri nýtingu fjármuna í opinberri þjónustu. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, fór meðal annars yfir þetta í viðtali við Ólaf Stephensen í hlaðvarpsþættinum Kaffikróknum á dögunum sem nálgast má hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um

Krafði leigjanda um háar bætur fyrir stórskemmt starfsmannahúsnæði – Tapaði á því að hafa áður kennt Veitum um
Fréttir
Í gær

Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Terra

Góð viðbrögð við nýjum styrktarsjóði Terra
Fréttir
Í gær

Sjónvarpsstjarna rifjar upp hræðilegt bílslys við Varmahlíð þar sem félagi hennar lést – „Ég barðist við sektarkennd“

Sjónvarpsstjarna rifjar upp hræðilegt bílslys við Varmahlíð þar sem félagi hennar lést – „Ég barðist við sektarkennd“
Fréttir
Í gær

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“

Varar fólk við að kaupa hvolpa utan HRFÍ – „Hundurinn er núna orðinn fjögurra mánaða og það eru þrír eigendur að honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“

Dorrit harðlega gagnrýnd fyrir að nudda sér upp við hægri öfgamanninn Farage – „Ótrúlega ógeðfelldur maður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu