fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fréttir

Brynjar segir Samfylkinguna minna á Spaugstofuna – Ragnar Reykás í aðalhlutverki

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. febrúar 2024 13:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur gaman að þeirri umræðu sem uppi hefur verið í kringum Samfylkinguna síðustu daga.

„Nú er ástæða til að kaupa popp og kók og fylgjast með Spaugstofu Samfylkingarinnar þar sem Ragnar Reykás er í aðalhlutverki,“ segir Brynjar í pistli á Facebook.

Athygli vakti á dögunum þegar Kristrún lýsti því yfir að hælisleitendakerfið vera ósanngjarnt og Ísland þurfi að ganga í sama takti og Norðurlöndin. Þá sagði Kristrún að velferðarsamfélög þurfi landamæri og kerfið sem nú er við lýði sé ósjálfbært.

Ummæli Kristrúnar vöktu athygli og voru ýmsir sem héldu því fram að um væri að ræða mikla stefnubreytingu hjá Samfylkingunni í innflytjendamálum.

Brynjar segir að helstu kanónur Samfylkingarinnar, fyrr og nú, séu dregnar á flot til að segja okkur að viðhorf formannsins sé ekki í andstöðu við stefnu Samfylkingarinnar í málefnum útlendinga og hælisleitenda.

„Jafnvel leitað á náðir fræðimanna í sama tilgangi, sem hafa þó ekki haft fyrir því að kynna sér lögin og það kerfi sem sniðið er utan um málefnin,“ segir Brynjar sem heldur áfram:

„Það er ekki nýtt að Samfylkingin tali út og suður eftir því hvernig vindar blása, eins og vinur okkar í Spaugstofunni. Er regla frekar en undantekning og mörg Íslandsmet slegin í hoppi á vinsældarvagna, með og án atrennu. Fagna ber hins vegar að að það örli á skynsemi og raunsæi í málflutningi formanns Samfylkingarinnar þegar kemur að málefnum útlendinga, sem hefur verið óþekkt hjá þingmönnum hennar hingað til.“

Brynjar sendir svo þingmönnum tóninn og segir að ruglið og stjórnleysið í málaflokknum sé á ábyrgð þingsins.

„Mest er ábyrgðin þó þeirra sem hafa staðið gegn öllum nauðsynlegum og skynsamlegum breytingum á löggjöfinni. Þar hafa þingmenn Samfylkingar staðið í stafni ásamt Pírötum og Sigmari Guðmundssyni. Það er engin mannúð og manngæska í því og þingmenn ættu að leiða hugann að því í hvers umboði þeir starfa og hverra hagsmuna þeir eru kosnir til að gæta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Þetta var svona eins og Jesúbarnið“

„Þetta var svona eins og Jesúbarnið“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Óhugnanleg líkamsárás við Kringluna í dag – Árásaraðilinn á grunnskólaaldri

Óhugnanleg líkamsárás við Kringluna í dag – Árásaraðilinn á grunnskólaaldri
Fréttir
Í gær

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka
Fréttir
Í gær

Ákærður nauðgari ætlaði úr landi

Ákærður nauðgari ætlaði úr landi
Fréttir
Í gær

Mamdani verður borgarstjóri New York – Hélt eldræðu eftir sigurinn og skaut á Trump

Mamdani verður borgarstjóri New York – Hélt eldræðu eftir sigurinn og skaut á Trump
Fréttir
Í gær

Lögreglan vildi fá að hlera hús í Reykjavík vegna gruns um skipulagða vændisstarfsemi

Lögreglan vildi fá að hlera hús í Reykjavík vegna gruns um skipulagða vændisstarfsemi
Fréttir
Í gær

Organista Glerárkirkju sagt upp störfum – „Ég var þrjóskur miðaldra karlmaður“

Organista Glerárkirkju sagt upp störfum – „Ég var þrjóskur miðaldra karlmaður“
Fréttir
Í gær

Sakfelldur fyrir hótanir og líkamsárás inni í varahlutaverslun

Sakfelldur fyrir hótanir og líkamsárás inni í varahlutaverslun