fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Pressan

Hræðsla í milljónaborgum – Óttast alvarlega stöðu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 13. október 2022 08:00

Kórónuveiran kom fyrst fram í Wuhan í Kína. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í mörgum kínverskum borgum hefur viðbúnaðarstig verið hækkað vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Sýnatökum hefur verið fjölgað og skólum og ferðamannastöðum hefur verið lokað.

Á mánudaginn greindust 28 með veiruna í Shanghai en þar búa rúmlega 25 milljónir. Reuters skýrir frá þessu.

Yfirvöld segja að á mánudaginn hafi 2.089 smit greinst í landinu og það mesti fjöldi smita á einum degi síðan í ágúst.

Þetta hefur orðið til þess að sóttvarnaaðgerðir hafa verið hertar í mörgum borgum. Skiptir þá engu þótt fjöldi smita sé ekki mikill miðað við víða annars staðar í heiminum.

People‘s Daily, sem er fjölmiðill undir stjórn kommúnistaflokksins, segir að þegar að staðan versni breiðist faraldurinn út og það hafi örugglega alvarleg áhrif á efnahags- og félagslega þróun. Þegar upp verði staðið verði kostnaðurinn meiri og tapið meira.

Fjölgun smita kemur í kjölfar nokkurra almennra frídaga þar sem fólk var mikið á faraldsfæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“

Komu að heimilinu ónýtu eftir ferðalag – „Ég syrgi minningarnar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni

Móðir hennar tilbað skrattann og framdi ólýsanlega hrottalegt morð – Nú deilir hún sögu sinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum

Miðvikudagar verða hér eftir frídagar í opinbera geiranum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu

Ferðamenn á Suður-Tenerife skelfingu lostnir eftir að maður ógnaði þeim með byssu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“

Háttsettur embættismaður segir af sér og segir að Trump hafi verið plataður í stríð – „Þetta var lygi“