fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Pressan

Danir eiga eina milljón skammta af bóluefnum á lager – „Algjörlega óskiljanlegt“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. júlí 2021 06:59

Bóluefni frá AstraZeneca. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danir eiga nú rúmlega eina milljón skammta af bóluefnum AstraZeneca og Janssen gegn kórónuveirunni á lager. Þessi bóluefni eru ekki notuð í hinni opinberu bólusetningaáætlun í Danmörku og hafa því safnast upp í geymslum sóttvarnastofnunarinnar en búið var að semja um kaup á þeim löngu áður en ákveðið var að nota þau ekki.

Danska ríkisútvarpið, DR, skýrir frá þessu. Fram kemur að bóluefni frá þessum tveimur framleiðendum berist enn þrátt fyrir að þau séu ekki notuð. Ísskápar sóttvarnastofnunarinnar eru því fullir af bóluefnum sem eru ekki notuð nema að mjög takmörkuðu leyti. Hægt er að fá bólusetningu með þessum tveimur bóluefnum ef fólk biður sérstaklega um það. Þá leið hafa um 45.000 manns valið.

„Það er algjörlega óskiljanlegt að þessar sendingar hafi ekki verið stöðvaðar,“ hefur DR eftir Peder Hvelplund, talsmanni Einingarlistans í heilbrigðismálum, um málið. Hann sagðist ætla að ræða þetta strax við heilbrigðisráðherrann svo hægt sé að stöðva þessar sendingar.

Flemming Konradsen, prófessor í alþjóðaheilbrigðisfræðum við Kaupmannahafnarháskóla, sagði að það skapi ákveðinn vanda að bóluefnin komi til Danmerkur áður en þau séu send til annarra landa sem hafa þörf fyrir þau. Þegar þau koma fyrst til Danmerkur er ekki hægt að nota þau í hinu alþjóðlega Covax bóluefnasamstarfi en aðeins er tekið við bóluefnum beint frá framleiðendum í því verkefni en það miðar að því að útvega fátæku ríkjum heimsins bóluefni. Hann sagði að af þessum ástæðum eigi Danir nú þegar að beina bóluefnasendingunum annað. Það sé hagur þeirra eins og annarra að tök náist á faraldrinum.

Julia Raavad, hjá Læknum án landamæra, sagði þetta vera sorglegt. Í mörgum löndum sé heilbrigðiskerfið að kikna undan annarri og þriðju bylgju faraldursins, því eigi að beina væntanlegum sendingum eitthvað annað en til Kaupmannahafnar.

Magnus Heunicke, heilbrigðisráðherra, gaf DR ekki kost á viðtali en sagði í tölvupósti að ríkisstjórnin meti stöðugt þörfina fyrir hvað þurfi að eiga af bóluefnum á lager og hvert bóluefni verða gefin í framtíðinni. Hann sagði áætlanir uppi um að gefa bóluefni til annarra landa og að nú þegar hafi ein milljón skammta af AstraZeneca verið gefin til ríkja á Balkanskaga og 250.000 skammtar hafa verið gefnir til Bhutan. Einnig fengu íbúar í Slésvík-Holtsetalandi nokkra tugi þúsunda skammta frá Dönum fyrr í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?

Er það núna sem Pútín er hættulegastur?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svíar lækka sakhæfisaldurinn

Svíar lækka sakhæfisaldurinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hernaðarsérfræðingur segir þetta ástæðurnar fyrir að Rússum hafi ekki gengið betur í stríðinu

Hernaðarsérfræðingur segir þetta ástæðurnar fyrir að Rússum hafi ekki gengið betur í stríðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Foreldrar beðnir um að heimila barnaníðingi að þjálfa börnin þeirra

Foreldrar beðnir um að heimila barnaníðingi að þjálfa börnin þeirra
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“

„Við hófum samfarirnar“ – „Síðan hringdi hann myndsímtal til vinar síns“