

Lögreglan á Vestfjörðum birti gervigreindarmynd til þess að auglýsa reglubundið eftirlit með skotvopnamálum. Lögreglan hefur lokað á athugasemdir með færslunni en hún hefur áður verið gagnrýnd fyrir notkun gervigreindarmynda.
Í færslu Lögreglunnar á Vestfjörðum á samfélagsmiðlum í gær var notuð gervigreindarmynd. Myndin sýnir þrjár persónur sem eiga að vera íslenskir lögregluþjónar handleika skotvopn. Í bakgrunni má sjá byssuskáp.
Augljóst er að um gervigreindarmynd sé að ræða, enda stafsetningarvillur á búningum lögregluþjónanna og allt annað merki. Þá er illgreinanlegur texti á möppu sem einn þeirra heldur á.
Færslan er til að minna skotvopnaeigendur á reglubundið eftirlit lögreglunnar og breytingar sem urðu á vopnalögum árið 2024.
Vekur athygli að lögreglan hefur lokað á athugasemdir við færsluna.
Lögreglan hefur áður verið gagnrýnd fyrir notkun gervigreindarmynda. Til dæmis Lögreglan á Suðurnesjum sem birti gervigreindarmynd af brosandi lögregluþjóni í kringum hóp skólabarna árið 2024. Sú mynd var jafn vel verri en sú sem Lögreglan á Vestfjörðum birti og andlit sumra barnanna bjöguð.
„Hversu fokking dystópískt að lögreglan sé að pósta AI myndum til að sýna hversu vinaleg og barnvæn hún er,“ sagði einn gagnrýninn netverji á samfélagsmiðlum eftir þá birtingu eins og Mannlíf greindi frá í frétt á sínum tíma.
Var lögreglan gagnrýnd fyrir að nota búnað sem steli höfundarréttarvörðu efni og persónuverndarlög.