fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Pressan

Nýtt kórónuveiruafbrigði í Kaliforníu – Talið meira smitandi og valda alvarlegum veikindum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 25. febrúar 2021 06:59

Stökkbreytt kórónuveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn hafa áhyggjur af nýju afbrigði kórónuveirunnar sem hefur uppgötvast í Kaliforníu. Afbrigðið er nefnt B.1.427/B.1.429. Tvær rannsóknir, sem verða birtar fljótlega, benda til að afbrigðið sé meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar og valdi jafnvel alvarlegri veikindum.

CNN skýrir frá þessu.  Fram kemur að vísindamenn við Kaliforníuháskóla í San Francisco hafi rannsakað veirusýni víða að úr ríkinu og komist að því að þetta nýja afbrigði hafi sótt í sig veðrið. Það var ekki að finna í sýnum í september en í janúar var það í helmingi sýnanna.

Vísindamenn segja að afbrigðið sé með aðrar stökkbreytingar en stökkbreyttu afbrigðin sem fundust fyrst á Englandi og í Suður-Afríku. Charles Chiu, sem stýrði rannsókninni, segir að stökkbreytingin geti styrkt veiruna í að tengjast við frumur í mannslíkamanum og þar með sé afbrigðið meira smitandi. Teymi hans fann einnig sannanir fyrir að afbrigðið sé hættulegra. Það auki líkurnar á alvarlegum veikindum.

CNN segir að ný afbrigði veirunnar geti valdið vanda á næstu vikum í Bandaríkjunum, jafnvel þótt smitum fari nú fækkandi og bólusetningum miði ágætlega.  Segir miðillinn að heilbrigðissérfræðingar óttist að stökkbreytt afbrigði veirunnar séu að taka fram úr bólusetningunum og því þurfi að halda áfram að nota andlitsgrímur, stunda félagsforðun og forðast mannmergð.

Það er rétt að hafa í huga að rannsóknirnar hafa ekki verið birtar eða ritrýndar enn sem komið er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Ótrúlegt myndband af hetjunni í Sydney – „Hann er hetja, 100% hetja“

Ótrúlegt myndband af hetjunni í Sydney – „Hann er hetja, 100% hetja“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Faðir skaut son sinn vegna heimsóknarleysis

Faðir skaut son sinn vegna heimsóknarleysis
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal

Ráðherrann staðinn að lygum í þinginu – Reyndi að fara undan í flæmingi og flúði svo þingsal
Pressan
Fyrir 5 dögum

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna
Pressan
Fyrir 1 viku

Trump brjálaður og segir það jaðra við landráð að fjölmiðlar saki hann um að vera heilsuveill

Trump brjálaður og segir það jaðra við landráð að fjölmiðlar saki hann um að vera heilsuveill
Pressan
Fyrir 1 viku

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma
Pressan
Fyrir 1 viku

Myndbandið sagt vera þess eðlis að það myndi valda óeirðum ef almenningur sæi það

Myndbandið sagt vera þess eðlis að það myndi valda óeirðum ef almenningur sæi það
Pressan
Fyrir 1 viku

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf