fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Pressan

Slæmar horfur í Bandaríkjunum varðandi heimsfaraldurinn

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 12. september 2020 09:00

Kórónuveira. Mynd: BSIP/UIG Via Getty Images)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi þeirra sem hafa látist af völdum kórónuveirunnar, sem veldur COVID-19, í Bandaríkjunum færist óðfluga nær 200.000. Enn er óljóst hvenær bóluefni gegn veirunni kemur á markað en á meðan rífast stjórnmálamenn um bóluefni og hvort og þá hvenær þau verða aðgengileg.

Dánartíðni, miðað við fjölda íbúa, er nú hærri í Bandaríkjunum en í Frakklandi og á svipuðu róli og á Ítalíu. Útlitið er ekki bjart næstu mánuði sagði Christopher Murray, hjá Institute for Health Metrics and Evaluation (IHME) nýlega á ráðstefnu.

„Það eru dimmir tímar framundan með vetrinum á norðurhveli og því miður gerum við ekki öll allt það sem við getum til að læra af reynslu síðustu fimm mánaða,“

sagði hann. IHME stendur á bak við mest notuðu spálíkönin um þróun heimsfaraldursins.

Murray sagði að IHME vænti þess að 410.000 Bandaríkjamenn látist af völdum veirunnar á þessu ári.

Faraldurinn hefur verið bandaríska heilbrigðiskerfinu erfiður sem og stjórnmálamönnum og stjórnsýslunni. Donald Trump, forseti, og margir ríkisstjórar hafa tapað fylgi frá upphafi faraldursins en einna mest tap á trausti almennings hefur CDC, sem stýrir heilbrigðismálum landsins, orðið fyrir. Í mars höfðu 86% landsmanna trú á stofnuninni en nú er hlutfallið komið niður í 54% samkvæmt könnun CBS-sjónvarpsstöðvarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Faðir skaut son sinn vegna heimsóknarleysis

Faðir skaut son sinn vegna heimsóknarleysis
Pressan
Fyrir 3 dögum

Langseturnar gætu verið að drepa þig

Langseturnar gætu verið að drepa þig
Pressan
Fyrir 5 dögum

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna

Eiginkonan varð veik eftir heimsendan mat – Brá mikið þegar hann sá Ring-upptökuna
Pressan
Fyrir 6 dögum

Móðir og amma handteknar eftir að tveggja ára stúlka rannst ráfandi í skógi

Móðir og amma handteknar eftir að tveggja ára stúlka rannst ráfandi í skógi
Pressan
Fyrir 1 viku

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma
Pressan
Fyrir 1 viku

Ótrúlegt myndband sýnir þegar flugvél lenti á bíl á hraðbraut

Ótrúlegt myndband sýnir þegar flugvél lenti á bíl á hraðbraut
Pressan
Fyrir 1 viku

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 1 viku

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum