
Joseph Quiros-Soto, 62 ára gamall maður búsettur í Georgíu, hefur verið ákærður fyrir morðið á Mauricio Cuadra sem var skotinn til bana á heimili sínu í Bayonne í New Jersey þann 9. ágúst árið 1989.
Samkvæmt dómsgögnum var Cuadra, sem var 48 ára þegar hann lést, staddur á heimili sínu ásamt kærustu sinni og tveimur ungum dætrum hennar þegar óþekktur maður sparkaði upp hurðinni og réðst inn. Cuadra reyndi að verja sig með kúbeini en árásarmaðurinn tók hann hálstaki og skaut hann í höfuðið í átökunum.
Í frétt CNN kemur fram að málið hafi verið óupplýst í áratugi þar til Quiros-Soto gekk inn á lögreglustöð í bænum Locust Grove í Georgíu í ágúst árið 2024 og játaði morðið. Að sögn lögreglu hafði presturinn hans hvatt hann til að stíga fram og taka ábyrgð á gjörðum sínum eftir að hann játaði morðið fyrir honum.
Lögreglustjórinn í Locust Grove, Derrick Austin, sagði að lögreglumenn hefðu í fyrstu verið fullir efasemda um frásögnina. Hins vegar hafi Quiros-Soto veitt afar nákvæmar upplýsingar um atburðarásina sem aldrei höfðu komið fram opinberlega.
„Þetta virtist ótrúlegt í fyrstu, en hann vissi svo margt um málið að við fórum fljótt að taka frásögn hans alvarlega,“ sagði Austin í samtali við CNN.
Rannsóknaryfirvöld segja að Quiros-Soto hafi lýst atburðum inni í íbúðinni með þeim hætti að aðeins gerandinn hefði getað lýst þeim. Hann lét einnig í té DNA-sýni sem reyndist passa við lífsýni sem fannst á fatnaði fórnarlambsins við rannsókn málsins árið 1989.
Handtaka fór fram á heimili Quiros-Soto í Griffin í Georgíu í lok maí á þessu ári. Samkvæmt lögreglu tók langan tíma að sannreyna upplýsingar hans og afla frekari sönnunargagna áður en hægt var að leggja fram ákæru.
Quiros-Soto er nú í haldi í Georgíu og bíður þess að verða framseldur til New Jersey. Hann hefur verið ákærður fyrir morð.
Yfirvöld hafa ekki gefið upp hvaða hvatar lágu að baki árásinni á sínum tíma þar sem rannsókn málsins stendur enn yfir.