fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Pressan

Vilja grafa upp lík Dyatlov-hópsins: Gæti ráðgátan loks verið að leysast?

Pressan
Föstudaginn 5. júní 2026 07:00

Síðasta myndin sem tekin var af hópnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðstandendur níu göngumanna sem létust við dularfullar aðstæður í Dyatlov-skarði í Úralfjöllum í Sovétríkjunum árið 1959 vilja að lík þeirra verði grafin upp og málið tekið til nýrrar rannsóknar.

Um er að ræða eina þekktustu og dularfyllstu ráðgátu 20. aldarinnar og hefur ýmsum kenningum verið varpað fram um hvað varð ungmennunum að bana.

Lögmaður fjölskyldnanna, Yevgeny Chernousov, segir að nútímalegar réttarmeinafræðilegar rannsóknir gætu varpað nýju ljósi á málið.

Aðstandendur krefjast þess að formleg sakamálarannsókn verði hafin á ný og að allar líkamsleifar hópsins verði rannsakaðar með aðferðum sem ekki voru tiltækar þegar málið kom fyrst upp.

Sjá einnig: Geimverur, geðveiki eða leynileg tilraun stjórnvalda? – Leyndardómurinn um dauðann í skarðinu

Aðkoman vakti mikla furðu

Dyatlov-málið hefur um áratugaskeið verið ein umtalaðasta ráðgáta frá tímum Sovétríkjanna. Atvikið átti sér stað í Úralfjöllum á svæði sem í dag tilheyrir Rússlandi.

Hópurinn, sem var undir stjórn hins 23 ára verkfræðinema Igor Dyatlov, lagði af stað í krefjandi skíða- og fjallgöngu um norðurhluta Úralfjalla í janúar 1959. Allir meðlimir hópsins voru reynslumiklir göngumenn og margir þeirra háskólanemar í góðu líkamlegu formi.

Þegar hópurinn skilaði sér ekki heim hófst umfangsmikil leit. Fljótlega fannst tjald þeirra í fjallshlíð en aðkoman vakti strax furðu. Skorið hafði verið í tjaldið innan frá og virtist sem göngumennirnir hefðu flúið út í vetrarnóttina án þess að klæða sig með fullnægjandi hætti. Sum líkanna fundust aðeins í nærfötum eða sokkum þrátt fyrir að frostið hefði farið langt niður fyrir tuttugu gráður.

Ástand sumra líkanna ýtti enn frekar undir ráðgátuna. Nokkrir höfðu hlotið alvarlega áverka, þar á meðal höfuðkúpubrot og kraminn brjóstkassa. Þá fundust tvö lík án augna og eitt þeirra án tungu. Síðustu líkin fundust ekki fyrr en tveimur mánuðum síðar eftir að þau höfðu legið undir snjó.

„Óþekkt náttúruafl“

Sovésk yfirvöld lokuðu málinu á sínum tíma með þeirri niðurstöðu að göngumennirnir hefðu látist af völdum „óþekkts náttúruafls“. Mörgum þótt sú skýring ekki fullnægjandi og á næstu áratugum spruttu upp fjölmargar kenningar um hvað hefði í raun gerst.

Meðal þeirra kenninga sem nefndar hafa verið má nefna snjóflóð, leynilegar hernaðartilraunir, eldflaugaprófanir, skyndilegt geðrof eða ofsahræðsla innan hópsins, árás af hálfu óþekktra manna, geimverur eða að „snjómaðurinn ógurlegi“ hafi látið til sín taka.

Rússnesk stjórnvöld létu framkvæma nýja rannsókn fyrir nokkrum árum og árið 2020 var niðurstaðan sú að snjóflóð eða svokallað flekahlaup hefði orðið hópnum að bana. Margir sérfræðingar töldu þá skýringu trúverðuga, en hún hefur þó ekki bundið enda á vangaveltur um málið. Aðstandendur fórnarlambanna hafa aldrei sætt sig við niðurstöðuna.

Nú telja þeir að mikilvægar rannsóknir hafi aldrei verið framkvæmdar á líkunum og að nýjar efnafræðilegar og vefjafræðilegar greiningar geti hugsanlega leitt sannleikann í ljós.

Verði fallist á beiðni þeirra um uppgröft líkanna gæti það markað stærstu vendinguna í Dyatlov-málinu frá því rússnesk yfirvöld lýstu yfir að snjóflóð hefði verið orsök dauðsfallanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fékk 18 ára fangelsi fyrir að kasta logandi dínamitstöng í kærastann sinn

Fékk 18 ára fangelsi fyrir að kasta logandi dínamitstöng í kærastann sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði

Verður fljótandi borg að veruleika? – Hýsir 80 þúsund manns með risastórum íþróttavelli, söfnum og vatnsrennibrautagarði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn

Elti 14 ára pilt og skaut hann til bana: Sýknaður eftir að hafa borið fyrir sig sjálfsvörn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum

FBI leitar konu sem beitti sína nánustu „ógeðfelldum“ blekkingum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð

Ferðalag fjögurra manna fjölskyldu í brúðkaup breyttist í martröð