fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 14:30

Það er hollt að fara í göngutúr. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lítil hreyfing er því miður orðinn hluti af hinu daglega lífi margra, sérstaklega vegna kyrrsetu vinnu og ferðamáta okkar.

Þess vegna hefur fólki árum saman verið ráðlagt að einblína á einfalt markmið eins og að ganga 8.000 eða 10.000 skref á dag. En niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að það sé ekki öruggt að öll skref hafi sömu áhrif á heilsuna.

Eftir því sem American College of Physicians segir þá veitir nýja rannsóknin, sem er bresk, betri innsýn í hvernig ganga tengist heilsufari. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Annals of Internal Medicine.

Í rannsókninni var notast við gögn rúmlega 33.500 fullorðinna úr UK Biobank. Fólkið átti það sameiginlegt að hreyfa sig frekar lítið. Það gekk að meðaltali minna en 8.000 skref á dag. Því var fylgt eftir í tæpan áratug.

Höfundar rannsóknarinnar segja að fólkinu hafi verið skipt í hópa eftir því hvernig það skipti göngu sinni. Sumir gengu mörgum sinnum en stutt í einu, aðrir fóru í lengri samhangandi göngutúra.

Niðurstöðurnar sýndu að þeir sem gengu lengri og samhangandi túra, áttu síður á hættu að deyja ótímabærum dauða og fá hjarta- og æðasjúkdóma.

Líkurnar minnkaði eftir því sem gönguferðirnar voru lengri, óháð því hversu mörg skref fólkið tók.

Vísindamennirnir segja að þetta bendi til að líkaminn hafi meira gagn af samhangandi hreyfingu en mörgum stuttum lotum með hléum á milli.

Áhrifin voru greinilegust hjá þeim sem hreyfðu sig minnst, sérstaklega hjá þeim sem gengu undir 5.000 skref á dag. Fyrir þennan hóp gerðu langir göngutúrar greinilegan mun.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda því til að fyrir þá fullorðnu, sem hreyfa sig lítið, geti langur samhangandi göngutúr verið betri en að eltast við ákveðinn skrefafjölda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt