fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 16:30

Ávaxtasafinn leynir á sér.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir tengja óhollan mat við skyndibitamat og sætar freistingar en nú beinir bandarískur læknir sjónunum að ósköp venjulegum morgunmat sem margir innbyrða dag hvern. Hann segir að þessi morgunmatur geti verið miklu óhollari en flestir gera sér í hugarlund.

Vitundarvakning hefur átt sér stað á síðustu árum um mikilvægi þess að borða hollan mat og sífellt fleiri eru orðnir meðvitaðir um hversu hættuleg ofurunnin matvæli eru.

En samt sem áður er það ein morgunverðarsamsetning sem flestir átta sig ekki á að sé ekki mjög holl.

Eric Berg, læknir, deilir heilsufarsráðleggingum á samfélagsmiðlum og hann bendir í einni færslu sinni á vinsæla morgunverðar tvennu sem hann telur réttast að forðast.

„Margir halda að þessi máltíð sé holl og hún hefur verið gerð svo eðlileg af því að svo margir borða hana, þar á meðal ég þegar ég var barn,“ sagði hann að sögn LADbible.

Það sem hann á við er blanda morgunverðarvara og appelsínusafa en þetta segir hann vera hættulegustu máltíð dagsins. Ástæðan er það er mikill sykur í þessu og hann getur haft áhrif á blóðsykurinn og lifrina.

Aðalvandinn er hinu vinsælu morgunverðarvörur, morgunkorn, sem eru oft ofurunnar og innihalda mikið af sykri, gerviefnum og kolvetni. Að borða þetta í morgunmat er í raun eins og að byrja daginn á að borða sælgæti.

Safinn gerir málið ekki betra því þrátt fyrir að appelsínusafi sé talinn hollur, þá innihalda margar tegundir hans mikið af sykri og það vantar trefjarnar í safann sem eru í sjálfum ávextinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt