
Samkvæmt því sem Medical News Today og nzip.cz segja þá eru bein og náin tengsl á milli heilbrigðs þarmakerfis og þess hvernig líkamsstarfsemin er.
Í grunninn snýst þetta um hvað við borðum. Trefjar, andoxunarefni og ensím hjálpa til við að halda meltingunni í gangi og styðja góðu bakteríurnar í þörmunum.
Mismunandi virkni ávaxta
Ávextir hafa mismunandi áhrif á líkamann enda uppbygging þeirra mismunandi. Epli innihalda pektín sem hjálpar til við stöðuga meltingu og veitir góðu þarmabakteríunum næringu að sögn nzip.cz.
Perur innihalda vatn og trefjar sem vinna gegn hægðatregðu.
Kíví inniheldur ensím sem auðveldar líkamanum að brjóta prótínniður og það léttir á maganum að sögn Medical News Today.
Bláber innihalda mikið af andoxunarefnum sem vernda þarmana og stuðla að heilbrigðu jafnvægi þeirra að sögn Euronews.
Það er því ekki ein ákveðin fæðutegund sem gerir gæfumuninn, það er fjölbreytnin sem er mikilvæg.
Þegar mismunandi næringarefni vinna saman, getur það bætt meltinguna minnkað hversu þaninn við erum.