

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór með línu úr kvikmyndinni Pulp Fiction þegar hann ætlaði að fara með bæn. Leikarinn Samuel L. Jackson gerði línuna fræga.
Hegseth stærir sig af því að vera heittrúaður kristinn maður en það verður að segjast að vitneskja hans um Biblíuna, trúarrit kristinna manna, virðist ekki vera uppi á marga fiska.
Eins og segir í frétt blaðsins Independent þá fór Hegseth með línu úr bíómyndinni Pulp Fiction þegar hann ætlaði að vitna í Biblíuna í bæn.
Hegseth fór með bænina á miðvikudag í guðsþjónustu í varnarmálaráðuneytinu, Pentagon, fyrir framan fjölda fólks. En athöfninni var einnig sjónvarpað. Ætlaði hann að fara með Esekíel 25:17 og láta hana vísa til björgunar flugmannsins sem hrapaði í Íran og var bjargað.
„Leið hins hrapaða flugmanns er umkringd óréttlæti þeirra eigingjörnu og harðstjórn hins illa manns. Blessaður er sá sem, í nafni félagsskapar og skyldu, leiðir hina týndu um dal myrkursins, því hann er sannarlega varðmaður bróður síns og sá sem finnur týnd börn. Og ég mun slá þá niður með mikilli hefnd og heiftarlegri reiði þá sem reyna að handsama og tortíma bróður mínum, og þú munt vita að kallmerki mitt er Sandy 1 þegar ég hefni mín á þér. Amen.“
En Esekíel 25:17 hljóðar á þessa leið:
„Og ég mun hefna mín á þeim með heiftarlegum ávítum, og þeir munu viðurkenna, að ég er Drottinn, þegar ég hefni mín á þeim.“