

Karlmaður hefur verið dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás sem átti sér stað á Hverfisgötu þann 24. febrúar. Var manninum gert að sök að hafa veist með ofbeldi að brotaþola og slegið hann í andlitið með flötum lófa. Afleiðingar ofbeldisins voru þær að brotaþoli hlaut góðarauga á báðum augum og nefbrot.
Var ákært fyrir alvarlega líkamsárás, en slíkt er venja þegar um beinbrot er að ræða.
Hinn ákærði hélt ekki uppi vörnum í málinu, en ekki er vitað hvar hann er búsettur svo ákæran og fyrirkall voru birt í Lögbirtingablaðinu í mars. Ákærði sótti ekki þingfestingu og var útvist hans metin honum til játningar á brotinu. Maðurinn var því sakfelldur. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hafði maðurinn ekki áður verið sakfelldur fyrir refsiverða háttsemi og var litið til þess við ákvörðun refsingar. Einnig var horft til þess að brotið beindist gegn heilsu brotaþola og olli honum líkamstjóni. Dómari taldi því refsingu hæfilega ákveðna fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.