

Fimm ára gömul leikskólabörn í Vestmannaeyjum hafa látið umferðaröryggi í bænum sig varða og sent lögreglunni bréf um það sem betur mætti fara hjá ökumönnum.
Hafa börnin orðið vitni að umferðarlagabrotum eins og hraðakstri, notkun farsíma án handfrjáls búnaðar, forgangur gangandi vegfaranda ekki virtur, og framúrakstri þar sem framúrakstur er ekki leyfður.
Lögreglan í Vestmannaeyjum segir frá því að henni hafi borist bréf frá börnunum á deild Ystakletts á fimm ára deildinni og var erindi bréfsins umferðaröryggi þeirra í göngutúr.
„Innihald bréfsins gefur til kynna að þeim hafi ekki staðið á sama um háttalag sumra ökumanna í Vestmannaeyjabæ og fékk einn drengurinn þá hugmynd að „senda bara löggunni bréf“.“

Lögreglan birtir bréfið í færslu á Facebook-síðu sinni með þeirri ábendingu að vorið nálgast og leiksskóla- og grunnskólabörn fari því að verða sýnilegri á gangstéttum bæjarins. Börnin, og lögreglan í Vestmannaeyjum, biðla því til ökumanna að flýta sér hægt, leggja farsímann frá sér, virða forgang gangandi vegfaranda og hafa augun opin við akstur.
„Í bréfinu komu einnig fram nokkrar vel valdar setningar frá börnunum úr gönguferðinni og fá þær að fylgja þessari tilkynningu, ásamt bréfinu sjálfu.
„Að bílar mega ekki taka fram úr“.
„Hann var í símanum og horfði ekki“.
„Maður á ekki að keyra þegar einhver er á gangbrautinni og að vera í símanum“.
„Það má ýta á takka í bílnum og tala og heyra þá í símanum“.“