fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ekki í fyrsta sinn sem það er fjaðrafok í kringum Ársæl- Kennarar ályktuðu gegn honum og skipunin sögð anga af spillingu

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. desember 2025 14:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Embætti skólameistara Borgarholtsskóla verður auglýst á næsta ári þegar skipunartími núverandi skólameistara, Ársæls Guðmundssonar, rennur út. Ársæll er reiður vegna þessa og telur að hér sé verið að refsa honum fyrir frægt símtal við Ingu Sæland um horfna strigaskó. Segir hann að venju samkvæmt hefði átt að skipa hann aftur. Hann var fyrst skipaður í embættið með umdeildum hætti árið 2016, en þar áður hafði hann starfað sem verkefnastjóri hjá menntamálaráðuneytinu þar sem hann tók meðal annars þátt í ritun hvítbókar sem lagði grunninn að styttingu framhaldsskólans og að sameiningu Iðnskólans í Hafnarfirði og Tækniskólans.

Sjá einnig: Ársæll segir hefndarhug búa að baki: „Það er engin önnur rökrétt skýring“

Margsaga skólameistari

Fjallað var um yfirtöku Tækniskólans á Iðnskólanum í Hafnarfirði í vikublaðinu Reykjavík í maí árið 2015. Þar kom fram að yfirtakan ætti sér lengri aðdraganda en yfirlýsingar menntamálaráðuneytisins gæfu til kynna og fjallað var um óánægju með störf Ársæls hjá Iðnskólanum, en Ársæll var þá í leyfi sem skólameistari og starfaði sem verkefnisstjóri innan menntamálaráðuneytis.

„Opinberlega hefur Ársæll sagt að niðurlagning skólans gangi gegn hans eigin hagsmunum, enda verði starf hans lagt niður. Innan skólans er hins vegar ekki annað að heyra en að gríðarleg óánægja hafi verið með störf hans þar og raunar var nokkur ólga innan veggja af þeim sökum. Í samtölum við starfsfólk skólans var stjórnunarstíll Ársæls harðlega gagnrýndur og nefndu heimildarmenn gerræðislega ákvarðanatöku og að hann hefði orðið margsaga um hluti.

Í maí 2014, skömmu áður en tilkynnt var um að hann hæfi störf í ráðuneytinu, ályktaði kennarafélag skólans gegn honum og gagnrýndi uppsagnir á ritara skólans og framkomu við námsráðgjafa skólans. Þær ályktanir beinast gegn Ársæli og var það staðfest í samtölum við fjölda starfsfólks skólans. Í ályktun félagsins um uppsögn ritara segir: „Við álítum uppsagnir ritara skólans tilefnislausar og vinnubrögð og framkvæmd uppsagna forkastanleg og til vansa fyrir skólabraginn.“ Það vekur því spurningar fremur en nokkuð annað þegar verkefnastjóri þess að leggja hinn sama skóla niður segir það beinlínis ganga gegn sínum eigin hagsmunum.“

Talsmaður styttingar

Hjá menntamálaráðuneytinu var Ársæll meðal annars skipaður í starfshóp til að kanna fýsileika þess að Tækniskólinn og Iðnskólinn sameinuðust. Það var metið fýsilegt, skólarnir sameinuðust, Iðnskólinn í Hafnarfirði var lagður niður og starfsemi hans færð undir Tækniskólann. Þar með var Ársæll ekki lengur skólameistari og starfaði áfram hjá ráðuneytinu þar til ári síðar þegar hann var með umdeildum hætti skipaður skólameistari Borgarholtsskóla. Í millitíðinni veitti Ársæll ráðuneytinu ráðgjöf varðandi útgáfu Hvítbókar um umbætur í menntamálum þar sem lagt var til að framhaldsskólanám yrði stytt úr fjórum árum niður í þrjú ár.

Ársæll hafði í raun talað fyrir styttingu framhaldsskólans nokkra hríð. Árið 2013 tók ung blaðakona, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sem seinna átti eftir að láta á sér kveða í stjórnmálum, viðtal við Ársæl fyrir Morgunblaðið. Þar sagði hann framhaldsskólakerfið úrelt. Fjölga þyrfti kennsludögum á ári og stytta framhaldsskólanámið. „Nemendur geta auðveldlega tekið meira nám á þremur árum en þeir gera á fjórum árum núna. Þetta er bara slugs.“

Taldi skipun Ársæls anga af spillingu

Þáverandi menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, skipaði ekki skólameistara Borgarholtsskóla árið 2016 þar sem starfsmaður ráðuneytis hans, Ársæll, var umsækjandi. Þess í stað var verkefnið falið Ólöfu Nordal innviðaráðherra. Umsóknarferlið dróst verulega á langinn sem olli kurri meðal starfsmanna Borgarholtsskóla. Ársæll hlaut að lokum embættið en skipunin gekk þvert á mat valnefndar sem taldi aðra umsækjendur hæfari. Þetta varð til þess að fulltrúi menntamálaráðherra í valnefndinni, Ragnar Þór Pétursson, sagði sig úr nefndinni og sagði málið anga af spillingu. Sagði hann að nefndin hafi meðal annars fengið fyrirmæli um að skoða umsækjendur ekki of vel. Taldi Ragnar ljóst að embættið hefði verið eyrnarmerkt Ársæli sem væri „innanbúðarmaður hjá Illuga og lykilmaður í hvítbókarvinnu hans.“

Sjá einnig: „Innanbúðarmaður hjá Illuga“ ráðinn yfir Borgarholtsskóla þvert á mat skólanefndar

Illugi tók fyrir að um spillingu væri að ræða enda hefði Ársæll verið virkur innan stjórnmála og þá fyrir Vinstri græna, Sjálfstæðisflokkurinn gæti því varla verið sakaður um að koma sínum manni í embættið. Ársæll var bæjarstjóri í Skagafirði árin 2002-2006 í meirihlutasamstarfi Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks.

Valnefndin taldi þáverandi aðstoðarskólameistara Borgarholtsskóla hæfasta umsækjandann, en að mati Ragnars Þórs voru fleiri en einn umsækjandi frambærilegri en Ársæll.

„Nú er ég ekki trúmaður á samsæriskenningar. En ég sit í skólanefnd meðal annars út á dómgreind mína, sem ég tel að sé í meðallagi góð. Ég fullyrði þess vegna að það sé nánast útilokað að Ársæll hafi verið valinn af faglegum forsendum. Umsókn hans benti ekki til þess að hann hefði mikinn skilning á forgangsmálum skólans eða þekkingu á innviðum hans. Þvert á móti var umsóknin að mínu mati einkennilega neikvæð og til þess fallin að gera lítið úr skólanum og starfsemi hans. Öll áhersla var á hagræðingu, skilvirkni og að laða að skólanum betri nemendur.“

Ársæll var grunnskólakennari á Blönduósi árin 1992-1994, aðstoðarskólameistari og um tíma settur skólameistari við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árin 1994-2002, var sveitarstjóri og hafnarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar árin 2002-2006 og skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar 2006 til 2010 og í framhaldi af því skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði.

Um skipan Ársæls skrifaði Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV:

„Allir skólanefndarmenn Borgarholtsskóla mæltu með sama manni sem skólastjóra. Fulltrúi menntaráðuneytisins sagði af sér, er ráðherra réð Ársæl Guðmundsson, í staðinn á ófaglegum grundvelli. Ársæll er innanbúðar hjá Illuga Gunnarssyni og einn af höfundum hinnar illræmdu Hvítbókar Illuga. Skólanefndin fékk að heyra, að ekkert þýddi að mæla með þeim hæfasta, staðan væri eyrnamerkt Ársæli. Illugi þorði ekki sjálfur í skítverkið og fékk Ólöfu Nordal innanríkis til að taka það að sér. Það segir ekki lítið, að sjálfur fulltrúi ráðuneytis segi af sér, þegar gamla, úldna Ísland valtar yfir allt og alla. Rekum bófana af þingi.“

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa