fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Fréttir

Lögreglan leitar þessara fjögurra manna

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 30. júlí 2025 14:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af mönnunum fjórum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu og eru þeir sem hafa upplýsingar um málið vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.

Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða 0803@lrh.is.

Myndin sem lögreglan birtir er unnin eftir upptöku úr öryggismyndavél.

DV greindi frá því á laugardag að nokkrir karlmenn hefði komið í skjóli nætur í flutningafyrirtækið Fraktlausnir við Héðinsgötu í Reykjavík og stolið nokkur hundruð lítrum af díselolíu með því að dæla henni úr tanki eins af flutningabílum fyrirtækisins.

Sjá einnig: Bíræfnir þjófar stálu nokkur hundruð lítrum af díselolíu – „Lögreglan hefur ekki áhuga á að stoppa svona lið“ – Myndband

Uppfært fimmtudag 31. júlí kl. 12.07:

Í gær sendi lögreglan út ofangreinda tilkynningu ásamt mynd sem unnin hafði verið eftir upptöku úr öryggismyndavél. Í dag fimmtudag sendi lögreglan frá sér nýja tilkynningu, auk þess að eyða færslu um þá fyrri af Facebook.

Sjá einnig: Lögreglan biðst afsökunar á að hafa dreift falsaðri mynd

Í tilkynningunni í dag biðst Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afsökunar á að hafa „dreift falsaðri mynd af hópi manna sem grunaðir eru um þjófnað á hundruðum lítra af díselolíu frá flutningafyrirtækinu Fraktlausnir. Í gær birti lögreglan myndina og óskaði eftir að ná tali af mönnunum á henni en í ljós hefur komið að um er að ræða skjáskot úr myndbandi úr eftirlitsmyndavéla Fraktlausna en myndinni hafði verið breytt verulega, líklega með aðstoð gervigreindar og var upphaflega birt í Facebook-hópnum Þjófar á Íslandi. Ljóst er að myndin gaf ekki rétta mynd af útliti mannanna sem leitað er að.

Tilkynning lögreglunnar fer hér á eftir í heild sinni:

Hér er myndin sem lögreglan deildi í gær, en ítrekað er að myndin er fölsuð:

Myndin er fölsuð.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sökuð um langvarandi ofbeldi gegn aldraðri móður sinni

Kona sökuð um langvarandi ofbeldi gegn aldraðri móður sinni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lexí boðið að selja blíðu sína þegar hún óskaði eftir aðstoð vegna hundsins síns – „Hvað er langt síðan þú stundaðir kynlíf?“

Lexí boðið að selja blíðu sína þegar hún óskaði eftir aðstoð vegna hundsins síns – „Hvað er langt síðan þú stundaðir kynlíf?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir að FBI muni elta Demókratana frá Texas uppi

Segir að FBI muni elta Demókratana frá Texas uppi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimilt verði að hafa hættulega menn áfram í haldi eftir að afplánun lýkur

Heimilt verði að hafa hættulega menn áfram í haldi eftir að afplánun lýkur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hildur hefur verulegar áhyggjur af framtíðinni – „Eftir hverju erum við að bíða?“

Hildur hefur verulegar áhyggjur af framtíðinni – „Eftir hverju erum við að bíða?“