
Læknirinn, Peter Stafford, starfar fyrir kristnu hjálparsamtökin Serge og hefur unnið á Nyankunde-sjúkrahúsinu í austurhluta Kongó frá árinu 2023. Samtökin staðfestu á mánudag að hann hefði smitast við störf sín á sjúkrahúsinu þar sem hann annaðist sjúklinga.
Samkvæmt NBC News var Stafford fluttur með sjúkraflugi til Þýskalands á þriðjudag og er nú í meðferð á sérhæfðri einangrunardeild á Charité-sjúkrahúsinu í Berlín. Í yfirlýsingu frá Serge segir að flutningurinn hafi gengið vel og að hann fái nú viðeigandi læknismeðferð.
Scott Myhre, svæðisstjóri Serge í Austur- og Mið-Afríku, sagði við NBC News að Stafford hefði verið mjög veikburða þegar hann var fluttur úr landinu.
„Hann var vart nógu sterkur til að ganga sjálfur,“ sagði Myhre og bætti við að heilbrigðisstarfsmenn í fullum hlífðarbúnaði hefðu stutt hann við brottförina.
Yfirvöld í Kongó hafa staðfest að að minnsta kosti 131 hafi látist í faraldrinum þar í landi og grunur sé um meira en 500 smit. Núverandi faraldur tengist svokallaðri Bundibugyo-undirgerð ebóluveirunnar.
Talið er að Stafford hafi smitast eftir að hann framkvæmdi aðgerð á 33 ára gömlum sjúklingi sem lést daginn eftir aðgerðina. Upphaflega var talið að maðurinn væri með gallblöðrusýkingu, en læknar telja nú líklegt að hann hafi verið með ebólu. Sjúklingurinn var grafinn áður en hægt var að staðfesta smitið með rannsókn.
Eiginkona Staffords, Rebekah Stafford, sem einnig er læknir, hafði sinnt sama sjúklingi. Hún og fjögur börn þeirra eru enn í Kongó þar sem fylgst er náið með heilsu þeirra. Engin þeirra hafa sýnt einkenni sjúkdómsins hingað til.
Ebóla er mjög alvarlegur veirusjúkdómur og getur dánartíðnin verið mjög há, allt eftir aðgengi að meðferð og því hversu hratt sjúklingar fá aðstoð. Veiran smitast með snertingu við líkamsvessa sýktra einstaklinga eða hluti sem hafa mengast af þeim.
Einkenni byrja oft með hita, vöðvaverkjum og þreytu áður en alvarlegri einkenni á borð við uppköst, niðurgang og innvortis eða ytri blæðingar koma fram.