fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fókus

Billy Joel fordæmir væntanlega kvikmynd um hann sjálfan sem er gerð í hans óþökk

Fókus
Miðvikudaginn 20. maí 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvikmynd byggð á fyrstu árunum af ferli tónlistarmannsins Billy Joel er væntanleg. Þetta var tilkynnt í gær, en kvikmyndin heitir Billy & Me og byggir á sögu umboðsmannsins Irwin Mazor sem uppgötvaði tónlistarmanninn árið 1966 og var umboðsmaður hans til ársins 1972. Kvikmynd sem þessi ætti að koma fáum á óvart enda hafa kvikmyndir um þekkt tónlistarfólk notið gífurlegra vinsælda undanfarin ár og má þá sem dæmi nefna kvikmyndirnar Bohemian Rhapsody, Rocketman, Michael, A Complete Unknown og Elvis.

Það sem er óvenjulegt við þessa mynd er að hún er gerð í algjörri óþökk við sjálfan tónlistarmanninn, Billy Joel sjálfan, sem hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að kvikmyndagerðarfólkið hafi hvorki heimild til að fjalla um líf og persónu tónlistarmannsins né heimild til að nýta tónlist hans.

„Billy Joel hefur hvorki veitt leyfi fyrir þessu verkefni né stutt það með nokkrum hætti og allar tilraunir til að halda þessu verkefni til streitu væru bæði lagalega og faglega óráðlegar,“ segir í yfirlýsingunni.

Handritshöfundur myndarinnar, Adam Ripp, hefur bent á að hvorki hann né aðrir sem koma að myndinni hafi haldið því fram að þeir hafi réttinn til að nota tónlist Joels eða hans vinsælustu lög. Verkefnið hafi frá upphafi verið hugsað sem saga af uppruna þessa fræga tónlistarmanns með áherslu á fólkið í kringum hann. Aðstandendur myndarinnar eru með einkarétt til að fjalla um líf og ævi umboðsmannsins, Irwin Mazors, sem og um ævi og líf Jons Small sem er gamall vinur Joels og fyrrverandi hljómsveitarfélagi hans. Jon Small kemur að framleiðslu myndarinnar sem ráðgjafi og meðframleiðandi.

Small og Joel kynntust á unglingsaldri. Þeir voru saman í hljómsveitinni The Hassles á sjöunda áratug síðustu aldar og stofnuðu síðar sýrurokksveitina Attila. Attila hætti árið 1971 þegar upp komst að eiginkona Small, Elizabeth Weber, átti í ástarsambandi við Joel. Weber yfirgaf svo báða mennina. Þá glímdi Joel við alvarlegt þunglyndi og þurfti Small meðal annars að keyra hann á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun. Weber sneri svo til baka, gerðist umboðsmaður Joel um tíma og þau gengu í hjónaband árið 1973 en skildu svo níu árum síðar. Small og Joel héldu áfram að vinna saman en að þessu sinni tók Small að sér að leikstýra tónlistarmyndböndum fyrir tónlistarmanninn. Leikstýrði hann meðal annars myndböndunum við vinsælu lögin Uptown Girl og Piano Man.

Small segir að kvikmyndin verði heiðarleg lýsing á æskuárum Billy Joels. Hún byggi á sannleika, alúð og innsýn þeirra sem þekktu og elskuðu Billy á þessum tíma.

The Guardian greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“

Líf harmar að hafa lækað þessa færslu – „Mjög leiðinleg skrunmistök“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“

Biður íslensku þjóðina afsökunar á neyðarlegum mistökum – „Stundum sagt að allt geti gerst í beinni útsendingu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“

Rod Stewart ánægður með Karl eftir heimsóknina til Trump – „Sagðir þessum rottuhala til syndanna“