fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Stefán Árnason lögfræðingur hefur átt í töluverðum útistöðum við Matvælastofnun (MAST) vegna dýrahalds í sumarhúsabyggð í Kjósinni. Árni Stefán hefur haldið þar dýr sem nágrannar hans saka hann um að vanrækja og hafa þeir þráfaldlega tilkynnt meinta vanrækslu hans á dýrunum til stofnunarinnar, sem hefur brugðist við með haldlagningu.

Samtals fimm hundar, fyrst fjórir og síðan einn, voru teknir í vörslu MAST fyrr í vor. DV hefur greint nokkuð frá þessum málum, sjá meðal annars hér:

MAST á leiðinni að taka hund Árna Stefáns sem nágranni kom í skjól – „Það má alls ekki afhenda honum hundinn!“

Nýlega tjáðu nágrannarnir MAST áhyggjur sína af dúfum sem þeir sögðu Árna geymar læstar og vatnslausar í dúfnakofa, þarna í Kjósinni. MAST greip til aðgerða og naut aðstoðar lögreglu. Fékk Árni eftirfarandi tilkynningu frá lögfræðingi MAST, Einari Erni Thorlacius, vegna aðgerðarinnar:

„Sæll Árni Stefán.

Matvælastofnun barst í gærmorgun ábending um að dúfur væru innilokaðar í dúfnakofa þínum í Kjósinni vatnslausar og læstar inni.

Farið var samdægurs í lögreglufylgd á staðinn. Í ljós kom að dúfnakofinn var ólæstur en þar þar reyndist vera inni ein dúfa án vatns.

Hún var tekin í vörslu Matvælastofnunar og tilkynnist það hér með.“

Segir að frekar hefði átt að sleppa dúfunni

Árni fer hæðnisfullum orðum um aðgerðina í færslu á Facebook. Má á honum skilja að lögreglufylgd hafi verið fyllilega óþörf og frekar hefði átt að sleppa dúfunni en leggja hald á hana:

„Grínið og vönduð stjórnsýsla heldur áfram af MAST. Fyrir tveim dögum taldi ég mig hafa tekið allar dúfur úr Kjós. Dúfur geta skv. fremstu dúfnaræktendum á Íslandi verið vatnslausar í allt að 7 daga. Hugðist fara í Kjós í dag til að tryggja að dúfur sem hefði máske ei skilað sér væru komnar að kofanum. Þá berast mér þessi skilaboð. Vel gert Einar og í lögreglufylgd. Þetta er stjórnsýsla og framfylgd laga um velferð dýra í hæsta gæðaflokki:) – Dúfunni hefði verið kærara að henni væri veittur drykkur og henni sleppt, svo mikið er víst. – Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu

Einar rýnir í veðrið í júlí: Landsmenn gætu átt von á góðu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag

Mynd úr íslenskum söluturni árið 1998 kveikir fjörugar umræður um verðlag í dag
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill fullur kvíða í verslunum

Egill fullur kvíða í verslunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því

Íslenskir bræður finna varla fyrir sársauka – Beit af tungunni án þess að finna fyrir því