fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Guðni ómyrkur í máli: „Óskiljanlegur aumingjadómur“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, varar við því að verið sé að stefna Háskólanum á Hólum og Hólastað í Hjaltadal í hættu með fyrirhuguðum breytingum á starfsemi skólans og mögulegri yfirfærslu verkefna til Háskóla Íslands.

Guðni skrifar um þetta í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Í upphafi greinar sinnar rifjar Guðni upp þjóðsöguna um kirkjuklukkuna Líkaböng sem á að hafa hringt af sjálfsdáðum þegar lík Jóns Arasonar biskups og sona hans voru flutt norður frá Skálholti. Hann segir að ekki kæmi sér á óvart „að Líkaböng muni aftur hefja upp hljóm sinn og láta ófriðlega ef Hólar í Hjaltadal, þetta sögufræga biskups-, mennta- og menningarsetur íslenskrar þjóðar, verður tekið af lífi með köldu blóði stjórnvalda.“

Guðni er harðorður í grein sinni og segir að „uppgjöf ráðamanna ríkisstjórnarinnar og heimamanna í Skagafirði sé óskiljanlegur aumingjadómur”.

Hann rifjar upp að Landbúnaðarskólinn á Hólum hafi árið 1991 fengið þrjú ný verkefni á sviði ferðaþjónustu, fiskeldis og íslenska hestsins og segir að þessar atvinnugreinar hafi síðan „sprungið út“.

Hann segir sitt eigið hlutverk hafa verið að færa skólann upp á háskólastig og byggja staðinn upp með stuðningi skólafólks og Skagfirðinga.

„Mitt hlutverk varð svo að færa Hólaskóla upp á háskólastig og byggja staðinn upp með öflugu skólafólki og Skagfirðingum. Þá munaði mikið um Kaupfélag Skagfirðinga. Nú er Þórólfur vinur minn orðinn friðsamur eins og Njáll forðum, grípur ekki til vopna. Þar er skarð fyrir skildi. Enginn tók við keflinu,“ segir hann.

Í greininni vísar Guðni einnig til orða Páls Skúlasonar, fyrrverandi rektors Háskóla Íslands, sem hafi talað við hann um mikilvægi smærri landsbyggðarháskóla fyrir byggðastefnu og samfélög landsins. Þó þeir væru ekki að afli eins og Háskóli Íslands kölluðu þeir til landsbyggðarinnar menntað fólk og nemendur sem síðan setjast að í byggðunum. Dæmi um slíka skóla væru Hvanneyri, Bifröst, Hólar og Háskólinn á Akureyri.

Guðni dregur jafnframt upp dökka mynd af mögulegri yfirtöku Háskóli Íslands á starfsemi Hóla. Hann skrifar meðal annars: „Nú skal Háskóli Íslands yfirtaka allt á Hólum og um sinn er Skagfirðingum sagt að kennslan fari fram á Sauðárkróki. Það kitlar hégómann. Hestakennslan verði áfram á Hólum en byggingarnar verði seldar hæstbjóðanda frá einkaframtakinu eins og slátur að hausti.“

Undir lok greinarinnar hvetur Guðni Skagfirðinga og aðra stuðningsmenn Hóla til að sameinast gegn breytingunum. „Það er ekki eingöngu verið að taka staðinn af lífi heldur söguna líka,“ skrifar hann og segir slíka niðurstöðu verða „ljótan blett sem aldrei verður tekinn til baka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“
Fréttir
Í gær

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta
Fréttir
Í gær

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“