
Vélin var á leið frá Kunming Changshui-alþjóðaflugvellinum til flugvallarins í borginni Guangzhou þegar slysið varð. Flugið átti einungis að taka um tvær klukkustundir en eftir um klukkustund fór vélin skyndilega í dýfu og hrapaði til jarðar.
Litlar upplýsingar hafa verið gefnar upp um slysið en New York Times grennslaðist fyrir um málið á dögunum og fékk nokkuð sláandi upplýsingar í hendurnar. Rannsóknargögn benda til þess að vélin hafi hrapað af mannavöldum og að átök hafi átt sér stað í stjórnklefa vélarinnar.
Vélin var í um 29 þúsund feta hæð þegar hún tók skyndilega nær lóðrétta dýfu og skall á fjallshlíð. Samkvæmt nýjum upplýsingum frá bandarísku flugslysanefndinni (NTSB), sem NY Times vitnar til, virðist sem slökkt hafi verið á eldsneytisflæði til beggja hreyfla vélarinnar í miðju flugi. Nefndin kom að rannsókn slyssins og voru gögn málsins birt eftir að óskað var eftir því með vísun til upplýsingalaga.
Jeff Guzzetti, fyrrverandi rannsakandi hjá bandarísku flugmálastjórninni og NTSB, segir gögn úr fluggagnaritara sýna að svokallaðir „cutoff“-rofar hafi verið virkjaðir inni í stjórnklefanum, en við það slokknaði á báðum hreyflum vélarinnar nær samstundis.

Gögnin sýna jafnframt að vélin fór strax í mjög skarpa dýfu og snerist í að minnsta kosti einn hring í loftinu áður en hún skall til jarðar.
Hreyfingar stýrishjóla í stjórnklefanum voru samkvæmt rannsókninni óreglulegar og rykkjóttar, sem gæti bent til átaka milli tveggja einstaklinga um stjórn vélarinnar.
„Harkalegar stýrishreyfingar sem beindu vélinni niður á við og létu hana snúast í loftinu benda til þess að þetta hafi verið gert af ásetningi,“ segir Guzzetti í samtali við blaðið.
Annar sérfræðingur í flugöryggi, John Cox, segir einnig ljóst að skipanirnar hafi komið úr stjórnklefanum, þó hann telji ekki fullsannað að átök hafi átt sér stað milli flugmannanna.
Kínversk stjórnvöld hafa hingað til birt afar takmarkaðar upplýsingar um rannsókn slyssins. Umræðan um málið var jafnframt ritskoðuð í kínverskum fjölmiðlum skömmu eftir slysið og hafa kínversk yfirvöld ekki tjáð sig um nýju gögnin.
Guzzetti sagði að fleiri atriði í gögnunum styrktu þá kenningu að átök hafi átt sér stað milli flugmannanna um stjórn flugvélarinnar.
„Ef þú ætlar að láta flugvél halla sér í beygju er það venjulega mjúk hreyfing,“ sagði hann. „Hér fer stjórnhjólið fram og til baka, aftur og aftur. Það bendir til þess að þarna hafi átt sér stað átök.“
John Cox, ráðgjafi í flugöryggi og fyrrverandi atvinnuflugmaður, sagðist sammála því að eldsneytislokunin og aðrar skipanir til vélarinnar hefðu komið úr stjórnklefanum, hugsanlega frá einum flugmanni.
„Flugmaður getur slökkt á eldsneytisflæði til beggja hreyfla samtímis með því að færa stangirnar úr „run“ yfir í „cutoff’“,“ sagði hann. Cox tók þó fram að þótt óvenjulegar hreyfingar stýrishjólsins bentu til átaka væru sönnunargögnin ekki óyggjandi.
NTSB sagði að fluggagnaritinn, annar hinna svokölluðu svörtu kassa, hefði hætt að skrá gögn meðan vélin var enn í falli, í um 26.000 feta hæð. Þar sem hreyflarnir voru ekki lengur í gangi var engin raforka til að knýja ritann.
Ritarinn skemmdist mjög illa í slysinu, samkvæmt NTSB en upplýsingar úr hljóðritara stjórnklefans, hinum svarta kassanum, hafa ekki verið gerðar opinberar.
Fluggagnaritinn leiddi einnig í ljós að í upphafi dýfunnar lækkaði vélin með allt að 40 gráðu halla – mun meiri en þær fáu gráður sem þarf fyrir venjulega lækkun, sagði Guzzetti.
„Þetta eru hreyfingar sem maður sér frekar hjá listflugvélum á flugsýningum,“ sagði Guzzetti og bætti við að farþegarnir hefðu líklega upplifað gríðarlega skelfingu þegar vélin steyptist stjórnlaust til jarðar.