
Fjörutíu og þriggja ára gamall maður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Gran Canaria eftir að hafa verið stunginn með hnífi í hálsinn fyrir utan verslun í Agaete, í norðvesturhluta Gran Canaria. Árásin var framin í gærkvöld og átti sér stað á Puerto de las Nieves svæðinu, sem er fjölsótt af bæði heimamönnum og ferðamönnum.
Canarian Weekly greinir frá.
Árásin var um áttaleytið og varð í kjöfar rifrildis. Sjónarvottar segja brotaþola hafa átt í háværum deilum við marga menn og hafi verið mjög æstur. Einn maður úr hópnum lagði þá til hans með hnífi. Viðbragðsaðilar komu fljótt á vettvang og fluttu hinn særða á sjúkrahús.
Árásarmaðurinn flýði af vettvangi og hefur ekki fundist. Ekki er vitað um ástæðu fyrir árásinni og er rannsakað hvort hún tengist eingöngu rifrildinu sem átti sér stað í aðdragandanum eða hvort um fyrri deilur hafi verið að ræða.
Lögregla leggur nú allt kapp á að finna hinn grunaða.