fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Pressan

Héldu að fótsporin væru eftir bjarndýr – Gæti verið miklu meira spennandi en það

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 12. desember 2021 21:30

Svona líta þau út.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það má líkja sögu einni frá Tansaníu við söguna um Öskubusku. Hún snýst um að 1976 fundust fótspor sem voru talin vera eftir bjarndýr en nú hefur ný rannsókn leitt í ljós að sporin eru líklega ekki eftir bjarndýr og sagan er því að margra mati orðin miklu meira spennandi.

Fótsporin eru 3,7 milljóna ára gömul. Samkvæmt niðurstöðum nýju rannsóknarinnar þá eru þau líklega eftir áður óþekkta tegund sem gekk á tveimur fótum, hugsanlega tegund manna.

„Þetta er mjög óvíst en þessi fótspor sýna að það voru til margar tegundir manna. Uppgötvunin sýnir einnig að þessar tegundir voru uppi á sama stað á sama tíma,“ hefur Norska ríkisútvarpið eftir Torfinn Ørmen dýrafræðingi.

Niðurstöður rannsóknarinnar vekja upp spurningu um hver það var sem gekk yfir lag eldfjallaösku í norðurhluta Tansaníu fyrir milljónum ára. Það er spurningin sem fjöldi vísindamanna um allan heim reynir nú að svara.

Þetta þykja mjög athyglisverð fótspor.

Fótsporin fundust á Laetoli sem er þekkt svæði í Afríku en þar hafa margir steingervingar fundist í gegnum tíðina. Til dæmis hafa tæplega 20.000 ólík fótspor fundist á svæðinu, bæði eftir dýr og tegundir manna, það er að segja mannapa sem gengu eins og við á tveimur fótum. En það eru aðallega spor eftir þrjá einstaklinga á þessum stað sem heilla vísindamenn. Tvö þeirra eru eftir tegundina Australopithecus afarensis en vísindamenn telja að forfeður okkar hafi verið af þessari tegund. Andlit hinnar frægu apaynju Lucy er andlit þessarar tegundar út á við.

En þriðja fótsporið, sem lengi var talið að væri eftir bjarndýr, er hugsanlega sönnun þess að Lucy og tegundin hennar voru ekki eina manntegundin, sem gekk á tveimur fótum, sem lifði í Afríku fyrir 3,7 milljónum ára.

Engin bjarndýr lifa í Afríku í dag en gerðu það hins vegar fyrir 4 milljónum ára. „Á yfirborðinu líkjast sporin kannski sporum eftir bjarndýr en birnir geta ekki gengið mörg skref á tveimur fótum. Þess utan hefðu verið skýr merki eftir klærnar,“ sagði Ørmen.

Það eru Ellison McNutt, prófessor, og starfsfélagar hennar við Ohio háskóla sem gerðu rannsóknina. Þau segja að mjög ólíklegt sé að sporin séu eftir bjarndýr, simpansa eða Australopithecus afarensis. Lögun þeirra er nefnilega svolítið óvenjuleg. Þau minna á þríhyrninginn. Ekki sé útilokað að þau séu eftir dýr sem var með stórutá sem hentaði til að klifra með en einnig hafi verið hægt að rétta úr henni þegar viðkomandi gekk á jörðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ásakanir um kynlífsþrælkun á Wall Street sagðar uppspuni frá rótum

Ásakanir um kynlífsþrælkun á Wall Street sagðar uppspuni frá rótum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nokkur merki þess að makinn sé að halda framhjá þér

Nokkur merki þess að makinn sé að halda framhjá þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að hér geti orðið flugöngþveiti í sumar

Segir að hér geti orðið flugöngþveiti í sumar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona oft ættu karlar að fá morgunreisn í viku hverri miðað við aldur

Svona oft ættu karlar að fá morgunreisn í viku hverri miðað við aldur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“
Pressan
Fyrir 3 dögum

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf