fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Útfararstofa hvetur fólk til að láta ekki bólusetja sig

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 22. september 2021 05:59

Auglýsingin hefur vakið mikla athygli. Mynd/Imgur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sunnudaginn sáu margir, sem voru á leið á leik Charlotte Panthers gegn New Orleans Saints í bandarískum ruðningi, sendiferðabíl merktan útfararstofunni Wilmore Funeral Home í miðborg Charlotte. Á bílnum voru stórar auglýsingar sem á stóð: „Ekki láta bólusetja þig.“

Víða reyna yfirvöld og fleiri að fá fleiri til að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni og því hefur eflaust einhverjum brugðið í brún við þessa auglýsingu útfararstofunnar enda ekki hægt að lesa annað úr henni en að fólk eigi ekki að láta bólusetja sig til að útfararstofan fái meiri viðskipti.

Í Bandaríkjunum hefur víða verið gripið til aðgerða til að reyna að fá fólk til að láta bólusetja sig, það fær greitt fyrir það, ókeypis mat, miða á íþróttaviðburði og fleira. Aðeins 55% Bandaríkjamanna hafa lokið bólusetningu að sögn CNN.

Fram kemur að auglýsingastofa í Charlotte hafi ákveðið að grípa til eigin aðgerða í málinu og fara óhefðbundnar leiðir við að reyna að fá fólk til að láta bólusetja sig. Hún lét því útbúa sendiferðabílinn með umræddum auglýsingum. Wilmore útfararstofan er ekki til og þegar farið er inn á heimasíðu hennar flyst fólk sjálfkrafa yfir á aðra heimasíðu þar sem eru leiðbeiningar um hvar er hægt að láta bólusetja sig og hvatning þar um.

Á heimasíðunni birtast síðan sprettigluggar með skilaboðum, „Láttu bólusetja þig núna“, og síðan: „Ef ekki, þá hittumst við fljótlega“.

David Oakley, forstjóri BooneOakley auglýsingastofunnar sagði í samtali við CNN að hann hafi talið tíma til kominn að taka hlutina alvarlega, hefðbundnar auglýsingar séu ekki að virka og því hafi verið ákveðið að fara þessa leið til að láta fólki bregða og fá það til að hugsa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni

Móðir ákærð – Hótaði barnsföður sínum að birta klámfengið efni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður

Norður-Kórea er betur undirbúin undir stríð en nokkru sinni áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum

Fundu bát sem var fullur af rotnandi líkum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum

Kynlífspartý, fíkniefni, Viagra og morð – Kaþólska kirkjan tengist vafasömum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug