fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Foden að skrifa undir eftir erfiða mánuði

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Phil Foden hefur náð samkomulagi um nýjan fjögurra ára samning við Manchester City.

Samningurinn mun halda Foden hjá félaginu til ársins 2030, með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar. Núverandi samningur hans átti að renna út eftir rúmt ár.

Þrátt fyrir að hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu undirstrikar samningurinn að Foden er í áætlunum City.

Foden, sem fékk tækifæri í aðalliði City aðeins 17 ára undir stjórn Pep Guardiola, hefur leikið yfir 350 leiki fyrir félagið og unnið sex Englandsmeistaratitla, sem og Meistaradeildina, svo dæmi séu tekin.

Talið er að óvissa ríki um þátttöku hans á HM með enska landsliðinu í sumar, en hann hefur lengi verið fastamaður fyrir þjóð sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar