fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Óttast að miklir þurrkar í Bandaríkjunum leiði til ofbeldisverka öfgahægrimanna

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 6. júní 2021 22:00

Lake Oroville hefur ekki farið varhluta af þurrkum að undanförnu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stöðuvötn eru orðin að engu, snjór í fjöllum heyrir fortíðinni til og bændur gefast upp á búskap. Svona er staðan í vesturhluta Bandaríkjanna þar sem þurrkar fara versnandi með hverjum deginum og nú blanda öfgasinnaðir hægri menn sér í baráttuna um vatnið.

Gavin Newsom, ríkisstjóri í Kaliforníu, hefur lýst yfir neyðarástandi í 41 af 58 héruðum ríkisins. Samkvæmt opinberum tölum þá herja þurrkar á allt ríkið og tveir þriðju hlutar þess eru í tveimur efstu flokkum þurrkaskalans.

Mörg vatnsból hafa látið á sjá og vatnsbirgðir eru með minnsta móti. Lake Oroville, sem hefur farið einna verst út úr þurrkunum, sér milljónum íbúa í San Francisco og nágrenni fyrir vatni. Weather.com segir að vatnsmagnið í vatnsbólinu sé nú undir helmingi þess sem það er venjulega á þessum tíma.

Myndir af vatnsbólum víða á vesturströnd Bandaríkjanna sýna að í mörgum er ekkert annað eftir en smá pollar, jafnvel þar sem áður voru stöðuvötn.

Í grein í Science á síðasta ári kom fram að í vesturhluta Bandaríkjanna herji nú mestu þurrkar í 500 ár. Eru þurrkarnir sagði afleiðing loftslagsbreytinganna. Í San Francisco var síðasta skólaár það næstþurrasta síðan 1850.

Venjulega fyllast vatnsbólin þegar snjór bráðnar í Sierra Nevada en óvenjulega lítið snjóaði þar síðasta vetur og ekki bætti úr skák að sums staðar var jarðvegurinn svo þurr að hann drakk vatnið bara í sig og það rann því aldrei út í ár og stöðuvötn.

Slæmt fyrir landbúnaðinn

Vatnsskortur er farinn að gera bændum í Kaliforníu erfitt fyrir. Ríkið er stærsta landbúnaðarríki landsins og þar er mikið af búfénaði sem þarf vatn. Víða hafa bændur gefið ræktun upp á bátinn á þessu ári en vökva þarf um 40% akra í ríkinu en nú er einfaldlega ekki vatn til að hægt sé að vökva.

Hóta ofbeldisverkum

Á ríkjamörkum Kaliforníu og Oregon er staðan gríðarlega slæm. Þar byggðu alríkisyfirvöld stíflur og áveitur fyrir 100 árum sem gjörbreyttu landslaginu að sögn New York Times. Þetta hafði þær afleiðingar að mýrlendi var gert að ökrum. Þurrkarnir hafa drepið lax í ám  og svo lítið vatn er í stærsta stöðuvatni Oregon að ekki er öruggt að fiskar lifi af.

Bændur hafa fengið þau skilaboð að þeir fái ekkert vatn á þessu ári en þeir hafa fengið vatn árlega síðan 1907 frá stíflukerfinu og úr stöðuvatninu. Þeir eru ævareiðir og segjast eiga rétt á að fá vatn og óttast að verða gjaldþrota. Sumir þeirra hafa viðrað þá skoðun að þeir eigi að grípa til aðgerða og opna fyrir áveiturnar sjálfir.

Ammon Bundy, þekktur öfgahægrimaður, hefur blandað sér í málin og sagt að fólk verði að vera reiðubúið til að beita valdi, jafnvel þótt lögreglan reyni að stöðva það. Bundy er meðal annars þekktur fyrir að hafa verið forsprakki ólöglegrar landtöku þjóðgarðs 2016 en þá tóku hann og fleiri vopnaðir menn garðinn yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig