fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
FréttirPressan

Söguleg tíðindi verða á morgun – Kim Jong-un fer fyrstur leiðtoga Norður-Kóreu til Suður-Kóreu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 07:09

Kim Jong-un einræðisherra í Norður-Kóreu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun hittast erkifjendur í landamærabænum Panmunjom í Suður-Kóreu en þá er von á Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, þangað til að funda með Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, um ýmis mál er varða samskipti ríkjanna. Þetta verður í fyrsta sinn síðan samið var um vopnahlé í Kóreustríðinu sem leiðtogi Norður-Kóreu stígur fæti á suður-kóreska grund.

Leiðtogarnir munu funda í „Peace House“ sem er um 200 metrum sunnan við hlutlausa svæðið sem skilur ríkin að. Á landamærunum standa mörg þúsund þungvopnaðir hermenn vörð og fylgjast með hverri hreyfingu óvinarins hinu megin við hlutlausa svæðið.

Bærinn Panmunjom var vettvangur fundarhalda þegar samið var um vopnahlé 1953 og stendur enn nær óbreyttur. Nú vonast margir til að fundurinn á morgun verði til þess að það slakni aðeins á þeirri spennu sem hefur einkennt samskipti ríkjanna um langt skeið. Aðeins hefur þó slaknað á spennunni undanfarið eftir að Kim Jong-un rétti fram sáttarhönd í byrjun árs. Kjarnorku- og eldflaugatilraunir norðanmanna hafa verið þyrnir í augum sunnanmanna og bandarískra bandamanna þeirra.

Á laugardaginn tilkynnti Kim Jong-un að Norður-Kórea væri hætt tilraunum með kjarnorkusprengjur og eldflaugar þar sem slíkur árangur hefði náðst að ekki væri lengur þörf á tilraunum. En eins og DV skýrði frá fyrr í morgun þá er ekki víst að norðanmenn hafi hætt tilraununum ótilneyddir.

Þriðji fundur leiðtoga ríkjanna

Fundurinn á morgun verður þriðji fundur leiðtoga ríkjanna síðan stríðinu lauk en þeir hafa aldrei áður fundað í Suður-Kóreu.

Þegar Kim Jong-un kemur til fundarins á morgun mun Moon Jae-in taka á móti honum en hann ætti að þekkja Panmunjom vel því hann sinnti landamæragæslu þar þegar hann gegndi herskyldu.

Fundurinn á morgun er eitthvað sem enginn sá fyrir síðasta haust en þá deildu Kim Jong-un og Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hart og hernaðarsérfræðingar ræddu af fullri alvöru hvort Bandaríkin myndu gera árás á Norður-Kóreu og jafnvel beita kjarnorkuvopnum.

Fundurinn á morgun er þó kannski aðeins upphitun fyrir aðalfundinn sem verður á næstu vikum þegar Kim Jong-un og Donald Trump hittast.

Reiknað er með að fundurinn á morgun mun væntanlega snúast um innri málefni Kóreuríkjanna eins og til dæmis endurfundi fjölskyldna sem enduðu í sitthvoru landinu í Kóreustríðinu. Einnig má reikna með að rætt verði um að hefja efnahagslega samvinnu ríkjanna á nýjan leik með endurlífgun hins sérstaka efnahagssvæðis í Norður-Kóreu þar sem norður-kóreskt vinnuafl vinnur fyrir suður-kóresk fyrirtæki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Í gær

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða
Pressan
Í gær

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum