fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Fókus

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur

Fókus
Miðvikudaginn 6. maí 2026 12:30

Helena Bonham Carter og Mike White.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágreiningur Helenu Bonham Carter og Mike White um frammistöðu hennar varð til þess að hún hætti við hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum vinsælu The White Lotus.

Leikkonan, 59 ára, hætti skyndilega níu dögum eftir að framleiðsla á fjórðu þáttaröðinni hófst í Frakklandi.

Variety greindi frá því á mánudag að Carter hefði átt í listrænum greiningi við White, höfund og leikstjóra þáttanna, – vegna þess að hann krafðist „háværari frammistöðu“ frá henni. Hafði Variety eftir heimildarmönnum að Carter ætti að leika stjörnu sem ekki væri lengur á hátindi frægðarinnar og leitaðist eftir endurkomu.

Talsmaður HBO sjónvarpsstöðvarinnar sagði um brotthvarf Carter: „Þar sem tökur á fjórðu þáttaröð af The White Lotus voru rétt að hefjast var orðið ljóst að persónan sem Mike White skapaði fyrir Helenu Bonham Carter passaði ekki vel við tökur. HBO, framleiðendurnir og Mike White eru miður sín að fá ekki að vinna með henni, en eru áfram dyggir aðdáendur og vonast innilega til að vinna með hinni goðsagnakenndu leikkonu að öðru verkefni fljótlega.“

Nokkrum dögum síðar var tilkynnt að Laura Dern kæmi inn í staðinn. Hún tekur þó ekki við hlutverki Carters, heldur skrifaði White persónu Dern sérstaklega fyrir hana. Dern hefur áður komið að þáttaröðinni, en rödd hennar heyrist í annarri þáttaröð, Dern var ekki getið í kreditlista þáttanna.

Laura Dern

Dern og White hafa áður unnið saman að kvikmyndinni Year of the Dog frá árinu 2007 og HBO-þáttunum Enlightened frá árinu 2011.

Fjórða þáttaröðin af The White Louts gerist á lúxushóteli í Frakklandi á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Í stjörnuprýddu leikaraliði eru Rosie Perez, Max Greenfield, Kumail Nanjiani, Chloe Bennet, Steve Coogan, AJ Michalka og Sandra Bernhard, auk áðurnefndar Laura Dern.

Variety greindi frá því að fjórða þáttaröðin hafi fjárhagsáætlun upp á 120 milljónir dala og að kvikmyndahátíðin í Cannes verði notuð sem aðalumgjörð á meðan á sjö mánaða framleiðslu stendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið – „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“

Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið – „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni

Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Patrekur Jaime leysir Ásdísi bæjarstjóra af – Þetta eru áherslumál hans í Kópavogi

Patrekur Jaime leysir Ásdísi bæjarstjóra af – Þetta eru áherslumál hans í Kópavogi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stjarna Finna í Eurovision segir að sigur yrði hin fullkomna hefnd – „Þetta yrði mín langatöng til hans“

Stjarna Finna í Eurovision segir að sigur yrði hin fullkomna hefnd – „Þetta yrði mín langatöng til hans“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur