fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Leikskólabörn í Eyjum siða ökumenn til – „Hann var í símanum og horfði ekki“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm ára gömul leikskólabörn í Vestmannaeyjum hafa látið umferðaröryggi í bænum sig varða og sent lögreglunni bréf um það sem betur mætti fara hjá ökumönnum.

Hafa börnin orðið vitni að umferðarlagabrotum eins og hraðakstri, notkun farsíma án handfrjáls búnaðar, forgangur gangandi vegfaranda ekki virtur, og framúrakstri þar sem framúrakstur er ekki leyfður.

Lögreglan í Vestmannaeyjum segir frá því að henni hafi borist bréf frá börnunum á deild Ystakletts á fimm ára deildinni og var erindi bréfsins umferðaröryggi þeirra í göngutúr.

„Innihald bréfsins gefur til kynna að þeim hafi ekki staðið á sama um háttalag sumra ökumanna í Vestmannaeyjabæ og fékk einn drengurinn þá hugmynd að „senda bara löggunni bréf“.“

Mynd: Facebook

Lögreglan birtir bréfið í færslu á Facebook-síðu sinni með þeirri ábendingu að vorið nálgast og leiksskóla- og grunnskólabörn fari því að verða sýnilegri á gangstéttum bæjarins. Börnin, og lögreglan í Vestmannaeyjum, biðla því til ökumanna að flýta sér hægt, leggja farsímann frá sér, virða forgang gangandi vegfaranda og hafa augun opin við akstur.

„Í bréfinu komu einnig fram nokkrar vel valdar setningar frá börnunum úr gönguferðinni og fá þær að fylgja þessari tilkynningu, ásamt bréfinu sjálfu.

„Að bílar mega ekki taka fram úr“.

„Hann var í símanum og horfði ekki“.

„Maður á ekki að keyra þegar einhver er á gangbrautinni og að vera í símanum“.

„Það má ýta á takka í bílnum og tala og heyra þá í símanum“.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“