fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Lög frá 1687 björguðu leigjanda sem leigusali vill bera út

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra sem hafnaði kröfu leigusala um að leigjandi stúdíóíbúðar í hans eigu skuli borinn út. Til að rökstyðja niðurstöðuna vísaði rétturinn meðal annars í lög frá árinu 1687.

Leigjandinn er kona en leigusalinn er karlmaður.

Í beiðni mannsins um útburð kom fram að þau hefðu gert með sér leigusamning í byrjun nóvember 2025. Hins vegar hafi orðið vanskil á leigunni og hann beint greiðsluáskorun til konunnar 18. desember sama ár. Hún hafi ekki orðið við því og hann því rift samningnum 29. desember en konan hafi ekki enn yfirgefið íbúðina. í úrskurði héraðsdóms kemur fram að konan hafi á endanum borgað það sem var í vanskilum og talið að nýr leigusamningur væri kominn á milli hennar og leigusalans.

Leigusalinn á hins vegar ekki íbúðina einn. Hann er tilgreindur sem leigusali í leigusamningnum en samkvæmt fasteignayfirliti Creditinfo á hann íbúðina ásamt konu sem í samningnum er skráð umboðsmaður. Meðeigandi hans að íbúðinni var hins vegar ekki aðili að málinu.

17. öld

Landsréttur víkur því næst í úrskurði að fornum lögum:

„Í norsku lögum Kristjáns V. frá 15. apríl 1687, ákvæði VI-14-6, kemur meðal annars fram að ef maður vill ekki flytjast úr leiguhúsnæði á fardegi réttum, þótt honum hafi löglega verið út byggt, eða hann hefst við í húsi, sem hann á engan rétt til eða hefur verið dæmdur úr, að ólofi eiganda, þá megi „eigandi án frekara dóms láta þjónaréttarins ryðja húsið.““

Rétturinn segir að samkvæmt orðalagi þessarar meginheimildar íslensks réttar til útburðargerðar leigutaka án undangengins dóms eða sáttar sé aðeins á færi eiganda húsnæðis að neyta hennar. Vísar rétturinn enn fremur í dóma Hæstaréttar þessu til stuðnings.

Landsrétturinn segir manninn ekki hafa rökstutt á grundvelli hvaða heimilda hann fari einn með ráðstöfunarrétt fasteignarinnar en engu breyti í þeim efnum það eitt að maðurinn hafi, án sérstakra skýringa, einn verið nefndur leigusali í leigusamningnum.

Þar sem hinn eigandinn að íbúðinni sé ekki aðili að málinu séu ekki forsendur fyrir því að verða við kröfu um útburð.

Úrskurði Landsréttar og Héraðsdóms Norðurlands eystra er hægt að nálgast hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“