fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Halla Bergþóra skipuð ríkislögreglustjóri

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 17:06

Halla Bergþóra er 56 ára. Hún hefur verið lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu síðan 2020 en áður var hún lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Mynd/Stjórnarráðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið skipuð ríkislögreglustjóri. Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.

„Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl,“ segir í tilkynningu Dómsmálaráðuneytisins.

Halla Bergþóra er 56 ára. Hún hefur verið lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu síðan 2020 en áður var hún lögreglustjóri á Norðurlandi eystra.

„Halla Bergþóra hefur sem lögreglustjóri leitt umfangsmikil verkefni, verið farsæll stjórnandi og stýrt stórum hópi starfsfólks hjá ólíkum lögregluembættum. Halla Bergþóra var formaður lögreglustjórafélagsins á þeim tíma sem lögreglustjóraembættin voru stofnuð, kom að þeirri vinnu í samstarfi við ráðuneytið og átti þátt í að móta nýtt embætti frá grunni,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn
Fréttir
Í gær

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar
Fréttir
Í gær

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur
Fréttir
Í gær

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag
Fréttir
Í gær

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“