fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Gufunesmálið í Landsrétti: Lúkas Geir biður fjölskyldu Hjörleifs afsökunar

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 13:02

Landsréttur. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lúkas Geir Ingvasson, einn þriggja aðalsakborninga í Gufunesmálinu, sem varðar andlát Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, 65 ára manns frá Þorlákshöfn sem lést í mars í fyrra í kjölfar mikilla misþyrminga, sýndi iðrun við aðalmeðferð málsins við Landsrétt í dag.

Lúkas var dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir hlutdeild sína í málinu, við Héraðsdóm Suðurlands í fyrra.

Meðal þess sem kom fram í vitnisburði Lúkasar Geirs var að Stefán Blackburn hafi lítið verið með Hjörleifi inni í iðnaðarbili á Kjalarnesi, þar sem Hjörleifi var haldið, en hann sjálfur og Matthías Björn Erlingsson (sem hlaut 14 fangelsi fyrir sinn þátt í málinu) hefðu aðallega verið með brotaþolanum.

Lúkas viðurkenndi að hafa misþyrmt Hjörleifi í iðnaðarbilinu, veitt honum um 10 þung högg, meðal annars sparkað í síðu hans.

Réttarhöldin í Landsrétti standa út vikuna og búast má við að dómur falli eftir rúmlega fjórar vikur.

Sjá einnig: Stefán Blackburn harmi sleginn og auðmjúkur í Landsrétti – Segist hafa komist til baka til sinna barna en ekki Hjörleifur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“

Bæjarstjóraskipti framundan á Akureyri – „Takk fyrir mig“
Fréttir
Í gær

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?

Hefðu Hildur og félagar átt að fylgja fordæmi Davíðs?
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“