fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Dómurinn gegn Helga Bjarti: Gögn ekki talin styðja allan framburð drengsins – Kynferðisleg áreitni en ekki nauðgun

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 15:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Bjartur Þovarðarson hlaut 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundnir. Mánuðina þrjá sem eru óskilorðsbundið hefur Helgi Bjartur þegar setið af sér í gæsluvarðhaldi. Fullyrt skal hér að margir áttu von á þyngri dómi.

Helgi Bjartur var ákærður fyrir húsbrot, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa árla morguns 14. september 2025, ruðst í heimildarleysi inn í íbúðarhús í Hafnarfirði og þar, í svefnherbergi á rishæð hússins, klætt sig úr buxum og lagst upp í rúm hjá dreng sem þar svaf. Hann var einnig ákærður fyrir vændiskaup sem hann játaði en hann neitaði öðrum ákæruatriðum.

DV hefur nú dóminn í málinu undir höndum. Það var niðurstaða dómara málsins við Héraðsdóm Reykjaness, Inga Tryggvasonar, að háttsemi Helga Bjarts við drenginn ætti að flokka undir kynferðislega áreitni en ekki nauðgun.

Dómarinn taldi ekki hægt að byggja alfarið á framburði drengsins þegar önnur gögn styddu ekki framburðinn, til dæmis um það atriði að drengurinn sagði Helga Bjart hafa reynt að þröngva getnaðarlim sínum inn í endaþarm hans. Dómarinn taldi eftirfarandi vera sannað um framgöngu Helga Bjarts: Hann hafi farið í heimildarleysi inn á heimili fjölskyldunnar í Hafnarfirði, dregið buxur hans niður, káfað á maga, brjóstkassa og rassi hans. Segir dómari að þessi háttsemi sé sönnuð.

Í íslenskum lögum geta önnur kynferðismök en samræði jafngilt nauðgun. Dómarinn telur hins vegar að sú háttsemi sem sönnuð er á Helga Bjart í málinu sé ekki nægilega gróf til að falla undir önnur kynferðismök en samræði, enda feli hún t.d. ekki í sér fullnægingu hans né að sönnuð né kynferðislega árás sem nálgist samfarir. Fella beri því háttsemina undir kynferðislega áreitni en ekki nauðgun, en í kynferðislegri áreitni felist snerting á líkama annarrar manneskju sem talin sé andstæð góðum siðum og samskiptaháttum.

Í almennum hegningarlögum segir að hver sá sem hafi samræði eða önnur kynferðismök við barn yngra en 15 ára skulu sæta fangelsi, ekki skemur en eitt ár og allt að 16 árum. Refsiramminn fyrir kynferðislega áreitni við barn er hins vegar 6 ára fangelsi og er því ljóst að refsingin yfir Helga Bjarti í þessu máli er langt undir refsirammanum.

Dæmdur til að greiða miskabætur

Helgi Bjartur var dæmdur til að greiða drengnum 1,5 milljónir króna í miskabætur og foreldrum hans 300 þúsund krónur. Hann er jafnframt dæmdur til að greiða þeim 350 þúsund krónur í málskostnað. Hann þarf ennfremur að greiða verjanda sínum, Oddgeiri Einarssyni, 2.650.500 krónur og réttargæslumönnum tæplega 442 þúsund krónur.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“