

Í dag fór í loftið hlaðvarpið Flekaskil en viðfangsefni þess er Ísland og alþjóðamál en stjórnendur þess eru Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum utanríkisráðherra. Ekki er algengt að pólitískir andstæðingar sameinist um slík verkefni en einn þekktasti sjónvarpsmaður þjóðarinnar lýsir yfir ánægju sinni með framtakið og segir að stjórnmálamenn eigi að huga oftar að því sem sameini fólk.
Í tilkynningu frá Degi segir að hann og Þórdís Kolbrún séu af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ætli að ræða flekaskilin sem séu að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast en ekki síst hvernig þessar breytingar hafi áhrif á stöðu Íslands, í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki landsins, í tengslum við Bandaríkin og Evrópu og þannig megi áfram telja. Þættirnir verða aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum og Youtube en ekki kemur fram hversu margir þeir verða.
Dagur segist vona að fólk hlusti, eða horfi og láti í sér heyra um efnistök. Hann og Þórdís Kolbrún séu mjög spennt fyrir að hlusta eftir viðtökum, taka við spurningum og ábendingum og hvað sem hlustendum dettur í hug.
Egill Helgason sjónvarpsmaður lýsir á Facebook yfir ánægju með þetta framtak stjórnarliðans Dags og stjórnarandstæðingsins Þórdísar Kolbrúnar:
„Þetta finnst mér prýðileg hugmynd. Ég á oft erfitt með að skilja þann garra sem einkennir pólitíkina. Stjórnmálamenn mættu gjarnan hugsa meira um það sem sameinar okkur en það sem sundrar okkur.“