fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Fréttastjóri gagnrýnir lágflugið harkalega – „Hvar var flugmaðurinn sem sat við hliðina á honum?“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 13. apríl 2026 14:30

Kristján er ómyrkur í máli. Mynd/Samsett/Varðberg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, segir hið umtalaða lágflug yfir Vestmannaeyjum um helgina hafa verið glannaskap með farþega. Hann spyr hvers vegna hinn flugmaðurinn hafi ekki gripið inn í.

„Hvernig má það vera að sumum finnist eðlilegt og sjálfsagt að flugstjóri í áætlunarflugi leyfir sér skyndilega að taka farþegaþotu fulla af fólki af flugleið og í lágflug yfir íbúabyggð?“ spyr Kristján í færslu á samfélagsmiðlum.

Mikil umræða hefur verið um lágflug farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjum, í síðasta flugi flugstjóra frá bænum. Icelandair segist líta málið alvarlegum augum og hefur tilkynnt málið til lögreglu.

Öryggi flugfarþega

En sumir hafa gert lítið úr atvikinu. Meðal annars Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, sem sagði óþarfa að biðja Eyjamenn afsökunar á lágfluginu. „Þetta var bara gaman. Má aldrei vera gaman?!“ sagði Páll.

„Fram hefur komið að eigendur vélarinnar og yfirmenn flugstjórans veittu ekki heimild fyrir þessu útspili. Eru nú búnir að óska eftir rannsókn á atvikinu. Og það skiljanlega. Icelandair er flugfélag í harðri alþjóðlegri samkeppni og leggur allt kapp á orðspor sitt, áreiðanleika starfsfólks og öryggi flugfarþega. Þessi flugstjóri ákvað hins vegar að kasta þessu öllu frá borði,“ segir Kristján í harðorðri færslunni. „Brjálsemi flugstjórans er eitt, en hvar var flugmaðurinn sem sat við hliðina á honum? Fannst honum þetta líka í lagi og ef svo, er ekki full þörf á því að skoða hæfni hans til að starfa áfram?“

Vekur upp spurningar

Kristján segir að lágflug geti verið skemmtilegt og mikið sjónarspil. En yfir þéttbýli sé það hins vegar vandasamt verk og jafn vel hættulegt.

„Það getur ekki verið eðlilegt að einn maður ákveði að framkvæma slíkan gjörning í miðju áætlunarflugi með flugvél fulla af fólki. Og það yfir heimili fólks á jörðu niðri,“ segir Kristján.

Segir hann að þetta atvik kalli fram ýmsar spurningar. Til að mynda um öryggi flugfarþega, um aðgerðarleysi flugmannsins þegar flugstjóri ákveði skyndilega að spila sólóleik, verkferla í tengslum við lágflug og framkvæmd á þess háttar flugi.

„Það má þó þakka fyrir eitt: Þetta var síðasta áætlunarflug þessa manns,“ segir hann að lokum.

Yrði ekki kátur

Færslan hefur fengið talsverða umræðu og sitt sýnist hverjum.

„Ef ég væri farþegi í vél þar sem svona gerðist, ja, þá yrði ég ekki kátur,“ segir fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason í athugasemdum.

„Það er margoft á hverjum degi svona lágflug yfir hjarta Reykjavíkur, allt árið um kring,“ segir rithöfundurinn Einar Kárason.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“