fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 11. apríl 2026 10:30

Decarlos getur ekki mætt fyrir rétt sökum slæms andlegs ástands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Decarlos Brown, maðurinn sem myrti hina úkraínsku Irynu Zarutska, er ósakhæfur. Dómari hefur úrskurðað að réttarhöld geti ekki farið fram yfir honum fyrr en andlegt ástand hans batnar.

Morðið á Irynu þann 22. ágúst í fyrra vakti gríðarlega mikla athygli. Iryna, sem kom sem flóttamaður frá Úkraínu til Bandaríkjanna árið 2022, var stungin í hálsinn í lest í borginni Charlotte í Norður Karólínufylki.

Morðið náðist á öryggismyndavél en í upptökunni sást að morðinginn, hinn 34 ára gamli Decarlos Brown, sem sat fyrir aftan Irynu stóð upp og stakk hana með eggvopni í hálsinn.

Vakti heimsathygli

Fram hefur komið að Decarlos hafi eytt stærstum hluta sinna fullorðinsára í fangelsi. Þá hefur hann lengi glímt við andlega erfiðleika.

Eins og áður segir vakti morðið gríðarlega athygli og hefur vakið upp umræðu um háa morðtíðni í Bandaríkjunum. Meðal annars sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að Decarlos væri „klikkaður“ og „geðsjúklingur“. Volodímír Selenskí, Úkraínuforseti, vottaði fjölskyldu Irynu samúðar og minntist á hana í ræðu í Sameinuðu þjóðunum.

Skilji ekki ákæruna og hlutverk sitt

Í staðarblaðinu The Charlotte Observer er greint frá því að réttarhöldin yfir Decarlos Brown geti ekki farið fram. Það er ekki fyrr en dómari úrskurði að andleg heilsa hans sé nægilega góð til þess að hægt sé að rétta yfir honum. Í dag sé hann algerlega ósakhæfur.

Sjá einnig:

Reiði eftir að blásið var til söfnunar fyrir morðingja

Ósakhæfið felst í því að viðkomandi skilji ekki hvað hann er sakaður um, skilji ekki hlutverk sitt í réttarhöldunum eða geti hjálpað vörn sinni á neinn hátt.

Dauðarefsingar krafist

Geðmat yfir Decarolos fór fram á Central Regional geðsjúkrahúsinu þann 29. desember. Var þá talið að hann væri ekki í andlegu ásigkomulagi til þess að mæta fyrir rétt. En Decarlos hefur verið ákærður fyrir morð af yfirlögðu ráði.

Dauðarefsing er í lögum í Norður Karólínu en hafa ekki verið framkvæmdar síðan árið 2006. Engu að síður krefjast saksóknarar í málinu þess að Decarlos verði tekinn af lífi verði hann fundinn sekur.

Vilja annað geðmat

Decarlos hefur verið heimilislaus um langt skeið. Er þetta langalvarlegasti glæpurinn sem hann hefur verið ákærður fyrir. En hann hefur meðal annars hlotið dóma fyrir vopnað rán og vopnalagabrot. Síðasti glæpur sem hann var dæmdur fyrir var að sólunda tíma neyðarlínunnar.

Decarlos verður um tíma áfram í varðhaldi og réttarhöldin hafa ekki verið felld niður. Búið er að óska eftir frestun á þinghaldinu í sex mánuði. Þá er einnig búið að fara fram á að gert verði annað geðmat á Decarlos.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hrönn: „Ertu ekki bara þreytt?“ – Fólk með þennan ósýnilega sjúkdóm mætir enn fordómum

Hrönn: „Ertu ekki bara þreytt?“ – Fólk með þennan ósýnilega sjúkdóm mætir enn fordómum
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Í gær

Tíu grísir drápust eftir innbrot á Kjalarnesi: „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi“

Tíu grísir drápust eftir innbrot á Kjalarnesi: „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi“
Fréttir
Í gær

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið
Fréttir
Í gær

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ingibergur smyglaði hassi til landsins 1972 – „Þau réðu alveg yfir minni framtíð“

Ingibergur smyglaði hassi til landsins 1972 – „Þau réðu alveg yfir minni framtíð“