fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Trump lýsir yfir stríði gegn Íran

Ritstjórn DV
Laugardaginn 28. febrúar 2026 08:57

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur birt í myndbandi ávarp á Truth Social þar sem hann lýsir yfir stríði gegn Íran.

Meginmarkmiðið með aðgerðunum sé að koma í veg fyrir að Íran komist yfir kjarnorkuvopn. Viðræður við Írani um kjarnorkumál hafi ekki borið árangur og Íranir hafi haldið áfram að þróa kjarnorku og hafi ekkert vilja gefa þar eftir.

Bæði Bandaríkjamenn og Ísraelar segja að árásirnar séu gerðar í því skyni að koma í veg fyrir að Íranir geti þróað kjarnorkuvopn og til að koma klerkastjórninni í Íran frá völdum.

Ísrael og Bandaríkin hafa gert árásir á Íran frá því snemma í morgun og segir Trump að árásirnar séu til að koma í veg fyrir að Íran geti gert árásir með eldflaugum sem drífi alla leið til Evrópu. Árásirnar hafa beinst gegn hernaðarmannvirkjum, ráðuneyti leyniþjónustu Írans, varnarmálaráðuneytinu og kjarnorkustofnun Írans.

CNN greinir frá því að árásir Ísraela og Bandaríkjamanna í nótt hafi verið samhæfðar. Trump varar við því Bandaríkjamenn geti látið lífið í aðgerðunum í Íran.

Sprengingar hafa verið í mörgum borgum Írans, þar á meðal höfuðborginni, Teheran. Samkvæmt heimildum CNN hafa Bandaríkjamenn undirbúið árásirnar í marga daga.

Fréttin hefur verið uppfærð. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“