fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 15:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gleðin verður í fyrirrúmi á fróðlegum og skemmtilegum KonMari-viðburði á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fimmtudaginn 12. febrúar.
Viltu einfalda lífið á nýja árinu og minnka stressið? Eru fataskáparnir fullir af fötum sem þú notar lítið? Finnst þér þú eiga allt of mikið dót? KonMari aðferðin getur hjálpað þér að gera breytingar.
Lísa Z. Valdimarsdóttir, alþjóðlegur KonMari ráðgjafi og ráðgjafi Skipulagsgleðinnar, segir frá aðferðinni sem nefnd er eftir japanska tiltektargúrúnum Marie Kondo en aðferð hennar ruddi sér til rúms fyrir nokkrum árum síðan.
Á viðburðinum, sem fer fram undir yfirskriftinni „Nýtt ár – einfaldara líf | Kynning á KonMari“, verður farið yfir grunnhugmyndina að baki aðferðinni þar sem gleðin er í fyrirrúmi.
Rætt verður hvernig við getum nýtt aðferðina á heimilinu og í lífinu og einnig kennt hvernig föt eru brotin saman með KonMari-aðferðinni.
Þau sem ætla að mæta á viðburðinn eru hvött til að koma með fatnað og læra fatabrotið.
Viðburðurinn hefst kl. 17:00.
Frítt inn og öll velkomin.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“