fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 17. apríl 2026 12:00

Sólmyrkvinn mun sjást á þessu svæði.......kannski.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dæmi eru um að íslensk hótel og gistiheimili rukki um hálfa milljón króna fyrir nóttina þegar sólmyrkvinn skellur á þann 12. ágúst næstkomandi. Sumir ferðamenn segja þetta rán um miðjan dag en aðrir að svona virki bara lögmálið um framboð og eftirspurn.

„Reykjavík ætti að skammast sín fyrir okrið á verði gistingar á sólmyrkvanum þann 12. ágúst,“ segir erlendur maður í spjallhópi ferðamanna á Íslandi á Facebook. „Þetta sannar fyrir mér að ríkið og/eða borgin er ekki að skipuleggja þetta nógu vel og þetta er stór blettur á orðspori borgarinnar.“

Fyrsti í Reykjavík síðan 1433

Eins og flestir vita þá er gríðarlega mikil eftirvænting eftir sólmyrkvanum, sem er almyrkvi á sólu og hefur ekki sést hér á landi síðan árið 1954. Sólmyrkvinn verður best sjáanlegastur á Látrabjargi og er gisting á vestanverðum Vestfjörðum fyrir löngu síðan uppseld og á uppsprengdu verði.

En sólmyrkvinn mun líka, ef veður leyfir, sjást á Snæfellsnesi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. Er þetta fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan árið 1433.

„3121 evrur fyrir eina nótt fyrir herbergi með tveimur kojum, í alvöru, þetta er rán,“ segir maðurinn hneykslaður. En það gerir tæpar 500 þúsund krónur.

„Farðu bara til Spánar“

Í athugasemdum benda hins vegar margir á að þetta sé klárt dæmi um framboð og eftirspurn. Þegar einstakur viðburður eins og sólmyrkvinn skellur á er verðið hækkað af því að eftirspurnin eykst.

„Þetta er frekar pirrandi, en ekkert öðruvísi en gert er í öðrum löndum þegar stór viðburður er. Ég og vinir mínir erum að fara í ferð og fengum uppgefið verð, en svo hefur verðið sums staðar hækkað og annars staðar lækkað. Þannig er lífið,“ segir ein kona.

Sjá einnig:

Tölvuþrjótar „seldu“ herbergi í gegnum tölvu Hótel Breiðavíkur á sólmyrkvanum – „Með undirskrift minni og öllu saman“

„Þetta er sólmyrkvi, þeir eru sjaldgæfir. Fólk vill sjá þá og verðið hækkar í samræmi við eftirspurnina,“ segir einn maður.

„Vá. Vildu heimsækja Reykjavík þegar einstakur sólmyrkvi er í gangi? Og þegar þú pantar herbergi með svo skömmum fyrirvara, þegar herbergin eru næstum öll uppbókuð, og þú kennir ríkisstjórninni eða borginni um að það sé dýrt? Í einu dýrasta landi heims? Magnað. Farðu bara til Spánar og finndu eitthvað ódýrara,“ segir annar.

Hækka ekki verðið

Sumir taka hins vegar undir með upphaflega innlegginu og spyrja hver sé afstaða íslenskra yfirvalda til þessara hækkana. Þær dragi heilindi og siðferði þeirra sem reki hótel og gistiheimili hér á landi í efa.

Einn íslenskur hóteleigandi blandar sér hins vegar í umræðurnar og segist ekki hafa hækkað verðið í sólmyrkvanum.

„Ég rek íbúðahótel. Ég breytti ekki verðinu. Ég hef aldrei gert það í 40 ár og aldrei okrað á viðskiptavinum mínum þegar það eru viðburðir í gangi. Ég horfi til langrar framtíðar, ekki skammtímagróða,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon