fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri grænna segist hafa gert sér grein fyrir í gær, þegar hann fylgdist með fundi borgarstjórnar heiman frá sér, að gera þurfi breytingar á skipulagi fundanna. Borgarstjórnarfundir séu í raun málstofur sem engin sé að hlusta á.

Reglulegur borgarstjórnarfundur fór fram í gær en Stefán segist í pistli á Facebook hafa fylgst með í gegnum netið heiman frá sér. Hann segist þess vegna hafa hlustað meira á sjálfan fundinn en hann geri venjulega þar sem þegar fundirnir fari fram sé hann venjulega staddur í Ráðhúsinu og fari hann þá iðulega í hliðarsali til að ræða við aðra viðstadda:

„Við erum að gera eitthvað stórkostlega vitlaust, “ segir Stefán og minnir á að flestar ákvarðanir séu ekki teknar á fundum borgarstjórnar heldur borgarráðs. Borgarstjórn sé hins vegar málstofan. Á fundum borgarstjórnar séu vissulega hinar ýmsu stefnur borgarinnar ræddar og staðfestar en þarna sé aðallega um að ræða umræðuvettvang:

„Efnt er til almennra umræðna um hin og þessi mál og minnihlutaflokkar flytja tillögur sem eru þó í raun oftast bara átylla til að hefja umræðu um eitthvað málefni sem endar svo yfirleitt á að snúast um bílastæði.“

Vandinn

Stefán segir ljóst hver helsti vandinn við fundi borgarstjórnar sé:

„En vandinn við þessa málstofu er að það er enginn að hlusta. Einu skiptin sem einhver mætir á áhorfendapallana er þegar verið er að mótmæla einhverju – og þá er stoppað stutt við. Áhorfið á beinu útsendinguna er óverulegt. Fjölmiðlar fylgjast ekki með þessu, nema þeir hafi fengið ábendingu frá einhverjumm borgarfulltrúanum eða starfsmanni borgarmálahóps um eitthvað tiltekið atriði. Enginn blaðamaður getur réttlætt það fyrir ritstjóranum sínum að hlusta á þetta tímunum saman.“

Hvetur Stefán til þess að borgarfulltrúar komi sér saman um að gera breytingar á fundum borgarstjórnar:

„Ég held að við öll sem vinnum þarna niðurfrá áttum okkur á að það er eitthvað verulega gallað við þetta allt. Auðvelda leiðin er auðvitað alltaf sú að slá því föstu að það sé aðallega hinni fylkingunni að kenna að þetta virki svona illa – en það er bara ekki rétt. Kjarni málsins er sá að ef við værum núna að setjast niður og skipuleggja frá grunni hvernig sniðugt gæti verið að haga skipulagi borgarstjórnarfunda til að þeir virki sem málstofa sem fólk nennir að fylgjast með, þá myndum við aldrei útfæra það svona. Það þarf að hugsa þetta rækilega upp á nýtt.“

Í umræðum í athugasemdum við pistilinn bætir Stefán við að hann hafi raunar á þessu kjörtímabili margoft kvartað yfir þessu.

Björk Vilhelmsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og síðar Samfylkingarinnar tekur undir með Stefáni:

„Hef aldrei hlustað á fund eftir að ég hætti sjálf í borgarstjòrn.“

Stefán segir það segja sína sögu.

Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar gerir athugasemdir við ýmislegt annað í störfum borgarstjórnar, til að mynda að borgarfulltrúar þurfi ekki að mæta í eigin persónu á fundi ráða og nefnda eins og Covid-faraldurinn standi enn yfir:

„Svo er líka stórundarlegt að borgarfulltrúar geti í tíma og ótíma kallað inn varamenn með tilheyrandi kostnaði fyrir borgarbúa. Það væri nær að hafa þetta eins og í þinginu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“