
Dómur féll í dag í Héraðsdómi Reykjaness yfir Helga Bjarti Þorvarðarsyni í hinu svokallaða Hafnarfjarðarmáli.
Helgi Bjartur var ákærður fyrir húsbrot, nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa árla morguns 14. september 2025 ruðst í heimildarleysi inn í íbúðarhús í Hafnarfirði og þar, í svefnherbergi á rishæð hússins, klætt sig úr buxum og lagst upp í rúm hjá dreng sem þar svaf. Hann hafi síðan brotið kynferðislega gegn drengnum. Var hann sagður hafa beitt drenginn ofbeldi og ólögmætri nauðung í krafti yfirburða sinna í formi aldurs og styrkleika. Hann hafi notfært sér að drengurinn gat ekki spornað við verknaðinum sökum aldurs og svefndrunga.
Í öðrum lið ákærunnar var Helgi Bjartur síðan ákærður fyrir vændiskaup. Hann neitaði sök um húsbrot og kynferðisbrot gegn drengnum en játaði vændiskaup.
Helgi Bjartur var sakfelldur fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni vegna málsins en ekki nauðgun. Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið.
Helgi Bjartur hefur setið í gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði og hefur því í raun afplánað þann hluta refsingarinnar sem hann á að sitja af sér.
Þetta upplýsti Karl Ingi Vilbergsson, varahéraðssaksóknari, í stuttu símtali. Dómurinn yfir Helga Bjarti hefur ekki verið birtur.
Fréttinni hefur verið breytt.