fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Sólveig er einstæðingur í kvíðakasti yfir því að eldast – „Ég mun ekki endilega hafa aðstandendur sem geta gripið inn í“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Skaftadóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Kópavogi, fær kvíðakast þegar hún hugsar um að eldast, enda er hún sem stendur barnlaus einstaklingur. Fólk í þeirri stöðu stendur gjarnan frammi fyrir gífurlegu flækjustigi þegar komið er á efri árin. Þetta kemur fram í grein Sólveigar sem birtist hjá Vísi í dag.

„Hugsum okkur gamlan mann í Kópavogi, köllum hann Kristján. Hann veikist skyndilega. Kannski eftir fall, veikindi eða einfaldlega vegna þess að heilsan hefur smám saman versnað. Hann fer á spítala, fær þar góða þjónustu og kemst svo í endurhæfingu. Þar gengur honum betur. Hann nær sér að hluta og er sendur heim. Það gerist hratt og áður en hann veit af er honum húrrað heim. Og þá byrjar vandinn.“

Þegar þessi ímyndaði Kristján er kominn heim tekur allt annað kerfi við honum. Hann þarf að sækja um bæði heimaþjónustu og heimahjúkrun, mögulega akstursþjónustu eða aðstoð við daglegt líf. Þessar þjónustur hafa allar sína umsókn, sína ferla og sína aðila sem leita þarf til. Enginn hefur heildaryfirsýn. Eigi Kristján aðstandendur sem geta aðstoðað við að halda utan um þetta allt og sækja um þær þjónustur sem hann þarf og hefur rétt á, telst Kristján heppinn. En það eru ekki allir svona heppnir.

Sólveig bendir á að margir tengi við stöðu Kristjáns. Staðan var fín þegar hann var á sjúkrahúsi og í endurhæfingu enda þjónustan þar samhæfð og ábyrgðin skýr. Þegar Kristján er kominn heim bíða hans ólík kerfi sem tala ekki saman. Heimaþjónustan er hjá sveitarfélaginu og heimahjúkrun hjá ríkinu. Þegar þessar þjónustur tala ekki saman þá skapast hætta og fólk fær ekki aðstoð á réttum tíma með tilheyrandi álagi sem getur orðið til þess að í verstu tilfellum endar fólk aftur á sjúkrahúsinu.

Kerfin sem Kristján þarf á að halda eru mannanna verk. Sólveig segir að Samfylkingin leggi áherslu á að stórefla þjónustu við eldra fólk sem býr í heimahúsi með því að samþætta heimaþjónustu, heimahjúkrun og ráðgjöf. Ein samfelld þjónusta sem fylgir þörfum hvers og eins.

„Þetta skiptir máli. Raunveruleg þjónusta snýst ekki um það hvað er til á blaði. Hún snýst um það hvort við náum utan um fólk á réttum tíma, jafnvel áður en vandinn verður of stór. Við eigum ekki að bíða eftir að fólk og aðstandendur villist í völundarhúsi stjórnsýslunnar til að fá hjálp. Þjónustan á að mæta fólki fyrr og án þess að það þurfi að berjast fyrir henni.“

Með samþættri þjónustu sé hægt að styðja eldra fólk til að halda sjálfstæði sínu lengur, draga úr þörf fyrir innlagnir og bæta lífsgæði. Miðað við stöðuna í Kópavogi í dag hvíli ábyrgðin á einstaklingnum sjálfum eða aðstandendum hans, en það sé hvorki sanngjarnt né skilvirkt.

„Og kannski er það ástæðan fyrir þessu litla kvíðakasti mínu. Eins og staðan er í dag er ég einstæð og barnlaus. Ég mun ekki endilega hafa aðstandendur sem geta gripið inn í þegar ég þarf á þjónustu að halda í ellinni. Þá þarf þjónustan að grípa mig. Í dag er ég ekki viss um að hún geri það. Við erum að eldast sem samfélag. Fólki sem býr eitt fjölgar. Það þýðir að samfélagið þarf að taka meiri ábyrgð – ekki minni.“

Sólveig segir að með því að byggja upp þjónustu sem virkar sem ein heild í kringum einstaklinginn þurfi hvorki einstæðingar eins og Sólveig né aðrir að fá kvíðakast yfir því að eldast.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður